Já það má svo sannarlega segja…. er farin að skrifa niður lista yfir það sem ég þarf að gera…. og svo lista yfir það sem ég þarf að gera fyrir hvern dag…. skipulagshæfileikarnir alveg í hámarki hérna…. ;0) Maður er að reyna að muna eftir öllu sem þarf að gera… sækja um þetta og sækja um hitt…. Fór einmitt í dag til að fá tryggingayfirlýsingu hjá Tryggingastofnun Ríkisins og svo er planið að fara annað hvort á morgun eða hinn og sækja um alþjóðlegt ökuskírteini …. Aldrei að vita nema að manni langi til að kíkja á rúntinn þarna úti ;0)
Svo bíður bara staflinn af bókum eftir að verða lesinn…. og verða áreiðanlega fleiri til…. ætla að kíkja á bókasafnið á morgun og koma heim drekkhlaðin af fróðleik ;0) Maður veit aldrei of mikið…. eða hvað??? Fjúff bara 12 dagar í brottför…. þetta styttist óð fluga - hmmm vonandi að við hittum ekki mikið af þeim þarna úti (sumsé óðum flugum til óðra flugna) ;0) Tíminn líður hratt enda erum við á gervihnattaöld (eða var þetta kannski djókur síðustu aldar??) við verðum áreiðanlega komnar út áður en við vitum af…..
En vallavegavanna…. þá kemur áreiðanlega upp hérna svona gróft plan af því sem við ætlum að gera…. eða því sem við höfum hugsað okkur að langa til að gera…. þetta verður forvitnilegt…. endilega fylgist með…… og það má sko líka alveg kommenta ;0)
Bisous
Berglind - eða Begga - eða miss Beggz (það er sko miss nafnið mitt hjá ítölsku mafíunni ;0)

Nýjustu komment