síðasta vikan….

… húff já það er víst orðin staðreynd að nú er upp runnin síðasta vika okkar á Íslandi…. í bili alla vega ;0) Eftir viku verður maður að vera búinn að pakka ofaní bakpokann og áreiðanlega kominn smá stress/ferða/tilhlökkun….. nokkur fiðrildi eiga eflaust eftir að flögra um……

En þetta fer nú allt að verða klappað og klárt….. Ég klára bólusetningarsprauturnar á morgun - malaríutöflurnar komnar í hús…. og vá geta þær nú verið dýrar… ég er nú fegin að vera ekkert að japla á þessu að staðaldri. Nú svo höfum við verslað okkur inn ágætis ferðaapótek…. maður er aldrei of viðbúin - og svo er hún Auður nú einu sinni skáti…. þannig að hún er ávallt viðbúin ;0)

Við fengum vegabréfin okkar síðastliðið fimmtudagskvöld….. okkur var synjað um landvistarleyfi vegna húmorsleysis á háu stigi…. það þykir ekki gott fyrir þjóðarsálina…. Neeeei bala glín…. við erum komnar með indverskan stimpil í vegabréfin okkar….. þannig að við komumst a.m.k. til Indlands….. Nú svo var bara drifið í því að fylla út annað umsóknareyðublað og þessa stundina eru vegabréfin okkar hjá nágrönnum Auðar, nánar tiltekið Kínverska sendiráðinu. En þeir lofuðu því staðfastlega að gefa okkur leyfi til að komast í þeirra fagra land….. hins vegar gæti orðið eitthvað aðeins meira vesen fyrir okkur að redda vegabréfsáritun til Tíbets…. en það verður tíminn einn að leiða í ljós ;0)

Jæja…. nóg í bili…. maður verður víst að halda áfram að pakka niður - lesa sig til og sitthvað fleira sem brýn þörf er á að gera ;0)

Begga ferðalöng ;0)

2 Responses to “síðasta vikan….”


  1. 1 Halla

    Ohh þetta er svo spennandi hjá ykkur.. Maður fær nú smá ferðalagsfiðrildi í magann..ekki hægt að neita því!! Ég ætla að kíkja á ykkur á fös, sjáumst þá!!

  2. 2 Þórdís Katla

    Sælar stúlkur.

    Ég vil óska ykkur góðrar ferðar og góða skemmtun.

    Hvernig lýtur ferðaplanið út? Hvert á að fara?

    bestu kveðjur úr hafnarfirði

    Þórdís

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security text shown in the picture. Click here to regenerate some new text.
Click to hear an audio file of the anti-spam word