Maing raastaa bhool gayaa hoong!!

Já já maður þarf nottla að æfa sig í hindi…. en ég ætla nú samt að vona að ég þurfi ekkert að vera að segja þetta. Er einhver góður í hindi sem fattar hvað þetta þýðir?? ;0)

Annars nálgast brottfarardagurinn ískyggilega hratt…. við verðum komnar um borð í vélina eftir 5 daga…. Til marks um það var síðasti vinnudagurinn í dag…. Frekar skrýtið þar sem ég er búin að vinna þarna í rúm 2 ár (já 2 ár og geri aðrir betur ;0) og er búin að vera að vinna nánast með sama fólkinu allan tímann…. bæði fullorðnum og börnum. Þannig að það voru blendnar tilfinningar þegar ég yfirgaf staðinn…. það sem tekur við í næstu viku verður bara skemmtilegt og framandi en það er líka pínu erfitt/skrýtið að kveðja alla þessa frábæru krakka sem maður er búinn að vera með 8 tíma á dag, nánast á hverjum degi síðastliðið hálft ár a.m.k. og sumum lengur….. og það er ótrúlegt hvað maður þekkist…. einu sinni fékk ég til dæmis að heyra það að það sæist sko alltaf á mér þegar ég væri að grínast af því að ég væri með ákveðinn svip ;0) en ég ætla sko pottþétt að kíkja í heimsókn á allt liðið þegar ég kem aftur þá eiga áreiðanlega þó nokkrir eftir að vera nokkrum sentimetrunum hærri…..

En núna tekur bara við lokaspretturinn í undirbúningi og pökkun…. ég er nú svo heppin að hún Hlíf, vinkona mín, ætlar að leigja íbúðina meðan ég verð á flakki. Hún fær afnot af helstu húsgögnum sem hér eru þannig að ég þarf ekki að vera að standa í því að burðast með einhver flykki hér fram og til baka…. pjúff…. ekkert smá fegin.

Svo verður bara dagurinn tekinn snemma á morgun og reynt að gera sem flest…. enda kominn ágætis listi…. svo er bara að fara að pakka í bakpokann og sjá hvað maður getur tekið mikið með sér ;0)

Kveðja frá flakkaranum…..

Begga/Berglind

3 Responses to “Maing raastaa bhool gayaa hoong!!”


  1. 1 Auður

    Já, það er greinilegt að ég þarf að fara að herða mig í hindi! Skil ekki bofs í þessu!

    Ég kíkti einmitt í leikskólann minn í gær. Maður á sko eftir að sakna þessara barna. Ég vann nú samt bara í 2 mánuði, ekki tvö ár!

  2. 2 audur

    Maður er nú ekki lengi að átta sig á þessu ;)

    Ég er týnd!

    Já, ég vona innilega að við verðum ekki strand á einhverju götuhorninu að reyna að klóra okkur fram úr framburðinum á þessari langloku!

  3. 3 Hrafnhildur Ýr

    Jæja núna eru bara fjórir dagar í brottför stelpur, er fiðringurinn ekki að magnast í mallakútnum ;)
    Hlakka til að hitta ykkur á morgun og eiga góða kvöldstund í síðasta skiptið í einhverja mánuði…þetta verður svo mikið ævintýri hjá ykkur og þið verðið komnar heim áður en við vitum af :)

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security text shown in the picture. Click here to regenerate some new text.
Click to hear an audio file of the anti-spam word