Archive for janúar 12th, 2008

Kveðjupartýið…

…. já við hittumst fríður hópur á Caruso í gær í tilefni brottfarar minnar og Auðar núna á mánudaginn…. NÚNA Á MÁNUDAGINN…. damn hvað tíminn líður hratt…. En ég held að ég tali fyrir okkur báðar þegar ég segi að við áttum góða kvöldstund með ykkur …. og dýrindis mat. Það var bara gaman að sjá hversu margir sáu sér fært um að koma… Við eigum eftir að sakna ykkar allra með tölu… og kannski hnappagati….  ;0) Kvöldið endaði þó ekki alveg nógu vel hjá mér…. og nei ég var edrú!! …. hefði sko alveg verið til í að sleppa við þetta mígreniskast svona síðasta kvöldið með vinunum…. eeeen ef maður lítur á björtu hliðarnar þá er það kannski betra heldur en þegar maður er kominn þarna út… en ég náði sumsé að staulast heim, taka inn eina íbúfen og skríða uppí rúm….  Kannski er stressið, tilhlökkunin og kvíðinn farin að segja til sín… ég hef alla vega ekki fengið mígreniskast í mörg ár…. en svona er lífið….

Annars er bara verið á fullu að pakka niður í kassa (veit að Auður ætlaði að klára að ganga frá sinni íbúð í dag;0)…. íbúðin hérna sem ég er í seldist nefnilega í gær…. þannig að plönin breyttust aðeins…. svo að núna er bara verið að reyna að hreinsa út….. Á morgun ætla svo mínar yndislegu systur og fjölskyldur þeirra að koma og hjálpa mér að ryðja öllu út…. og þá get ég farið að pakka niður í bakpokann ;0)

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili…. ég held að það sé alveg óhætt að segja að það bíði mörg verkefni….

Namaste,  

- B

ps……. Góður vinur er það besta sem þú getur verið og það besta sem þú getur átt ;0)