Archive for janúar 15th, 2008

Lentar í Delhi, Indlandi!

Jæja, jæja. Þá erum við komnar til Delhi.

Það varð tveggja tíma seinkun á fluginu okkar til London vegna veðurs. Hehe það er enginn snjór hér ;)

Tíminn var fljótur að líða á Heathrow og áður en við vissum vorum við á leiðinni í vélina - jumbo þotuna - til Delhi, þar sem við fengum konunglega meðferð.
Nokkrir heitir þvottapokar, þriggja rétta máltíð með víni, sokkar, tannbusti og tannkrem, bíómyndir að eigin vali…

Bakpokarnir skiluðu sér eftir flugið og okkur tókst að komast klakklaust frá vellinum í svokölluðum PrePaid Taxi. Leiðin að taxanum virtist nokkuð snúin í gegnum mannmergðina sem beið við útganginn en andlitin voru vinaleg og ekkert áreiti :)
Á leiðinni inn í borgina sáum við úlfaldalest, lögregluþjóna með hanakambshatt og eitt barn bankaði á bílrúðuna til að betla.

Það er kannski ekki alveg hægt að segja það sama um götuna Main Bazaar sem hótelið okkar, Vivek, stendur við. Það er að þar sé áreitið lítið sem ekkert. Við gerðum eina heiðarlega tilraun áðan til þess að skoða okkur um. Við svöruðum á einum stað einni af þeim þúsund spurningum sem ringdu yfir okkur og urðum samstundis eins og mykjuskán sem mýið sækist í. Það er spurning hvenær næsta tilraun verður gerð.. ;)

En það verða allavega þreyttar en kátar stúlkur sem leggjast á koddann í kvöld.

Bloggumst síðar ;)

Kv. Auður og Begga