Lentar í Delhi, Indlandi!

Jæja, jæja. Þá erum við komnar til Delhi.

Það varð tveggja tíma seinkun á fluginu okkar til London vegna veðurs. Hehe það er enginn snjór hér ;)

Tíminn var fljótur að líða á Heathrow og áður en við vissum vorum við á leiðinni í vélina - jumbo þotuna - til Delhi, þar sem við fengum konunglega meðferð.
Nokkrir heitir þvottapokar, þriggja rétta máltíð með víni, sokkar, tannbusti og tannkrem, bíómyndir að eigin vali…

Bakpokarnir skiluðu sér eftir flugið og okkur tókst að komast klakklaust frá vellinum í svokölluðum PrePaid Taxi. Leiðin að taxanum virtist nokkuð snúin í gegnum mannmergðina sem beið við útganginn en andlitin voru vinaleg og ekkert áreiti :)
Á leiðinni inn í borgina sáum við úlfaldalest, lögregluþjóna með hanakambshatt og eitt barn bankaði á bílrúðuna til að betla.

Það er kannski ekki alveg hægt að segja það sama um götuna Main Bazaar sem hótelið okkar, Vivek, stendur við. Það er að þar sé áreitið lítið sem ekkert. Við gerðum eina heiðarlega tilraun áðan til þess að skoða okkur um. Við svöruðum á einum stað einni af þeim þúsund spurningum sem ringdu yfir okkur og urðum samstundis eins og mykjuskán sem mýið sækist í. Það er spurning hvenær næsta tilraun verður gerð.. ;)

En það verða allavega þreyttar en kátar stúlkur sem leggjast á koddann í kvöld.

Bloggumst síðar ;)

Kv. Auður og Begga

7 Responses to “Lentar í Delhi, Indlandi!”


  1. 1 Hrafnhildur Ýr

    Æði að heyra að ferðalagið til Indlands hafi gengið vel elskurnar, hehe þið ljósu fallegu stelpurnar mínar verðið eflaust fyrir ágætis áreiti en það er bara gaman upp að vissu marki :)
    Hafiði það það súper gott og skemmtilegt!!
    Elskjú :*
    Þar til næst…ykkar miss hýe

  2. 2 Begga

    Haha… já og við gleymdum að skrifa það…. en ég komst að því þegar við vorum að bíða eftir fluginu á Keflavíkurflugvelli… að ég var í sitthvorum sokknum!! Einum bláum og einum svörtum…. hahahha hversu miklar líkur eru á að það gerist ákkúrat þarna…. þar sem ég er bara með nokkur pör af sokkum…. og ég á bara eitt blátt par… greinilega eitthvað ruglast í ríminu ;0)

  3. 3 Jason Hagalín

    Jasoni (3ja ára)langaði til að senda ykkur smá kveðju svona í upphafi ferðalagsins - ekki veit ég hvað þetta þýðir en þið getið kannski spurt innfædda :-)
    Bytvhmn cbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnn kkkkkkkjhgfdserzxcvbgfdsakloi uytrfcxz

  4. 4 Sigrún Á

    Heilar og sælar
    frábært að heyra að þið séuð sælar með byrjun ferðar.
    Góða skemmtun :)

  5. 5 Kristín Þóra

    Hæ, hæ

    Frábært að heyra að ferðabyrjunin gangi vel þrátt fyrir seinkun í Keflavík…. og Begga ég sé þig alveg fyrir mér skella uppúr við sokkauppgötvunina!!! Vonandi þarftu sem minnst að nota þá.

  6. 6 Mamma

    Gott að þið eruð komnar í sól og hita.
    Hér er allt á kafi í snjó, allar götur ófærar fólksbílum nema með fjórhjóladrifi.
    Gaman hjá ykkur að fá Nataliu með ykkur í ferðalag.
    Sofið vel fyrstu nóttina á Indlandi.
    Heyri ég hrotur ??.. :) snjóakveðjur frá Fosstúni 7

  7. 7 Bylgja

    Kærar heilsur til ykkar frá okkur Gumma!

    P.S…flestir láta duga 3-4 stafa kóda til að leggja inn komment!

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security text shown in the picture. Click here to regenerate some new text.
Click to hear an audio file of the anti-spam word