Archive for janúar 16th, 2008

Dýr á götum úti

Við notuðum fyrsta daginn í Delhi til þess að ná úr okkur flugþreytunni og komast í gang.

Okkur hefur nú þegar verið boðið í eitt stykki brúðkaup en það fer fram hérna í Delhi 24. janúar. Vinkona Beggu frá því í Frakklandi, Nitali, er hérna í Delhi en hún er af inverskum uppruna. Hún er tilbúin að hitta okkur og ferðast eitthvað með okkur um Indland fram að brúðkaupi en hún heldur af landi brott í lok mánaðarins.

Í gærkvöldi snæddum við á einum af mörgum veitingastöðum hverfisins. Nokkrar kýr áttu leið hjá, ein þeirra fékk sér að borða og hélt svo á brott. Sennilega í leit að eftirrétt á öðrum stað. Stuttu síðar rölti fíll framhjá í rólegheitunum. Stærðarinnar fíll á þessari litlu og þröngu götu sem myndi ábyggilega ekki rúma tvo bíla hlið við hlið!

Fróðlegt er að vita hvað dagurinn í dag ber í skauti sér.

Kv.

Auður og Begga