Við notuðum fyrsta daginn í Delhi til þess að ná úr okkur flugþreytunni og komast í gang.
Okkur hefur nú þegar verið boðið í eitt stykki brúðkaup en það fer fram hérna í Delhi 24. janúar. Vinkona Beggu frá því í Frakklandi, Nitali, er hérna í Delhi en hún er af inverskum uppruna. Hún er tilbúin að hitta okkur og ferðast eitthvað með okkur um Indland fram að brúðkaupi en hún heldur af landi brott í lok mánaðarins.
Í gærkvöldi snæddum við á einum af mörgum veitingastöðum hverfisins. Nokkrar kýr áttu leið hjá, ein þeirra fékk sér að borða og hélt svo á brott. Sennilega í leit að eftirrétt á öðrum stað. Stuttu síðar rölti fíll framhjá í rólegheitunum. Stærðarinnar fíll á þessari litlu og þröngu götu sem myndi ábyggilega ekki rúma tvo bíla hlið við hlið!
Fróðlegt er að vita hvað dagurinn í dag ber í skauti sér.
Kv.
Auður og Begga

Vá hvað þetta hljómar all saman mjög framandi og spennandi!
hehehe
Hlýtur að hafa verið nokkuð skondið að sjá fíl þramma eftir götunni, það er nú ekki daglegt brauð hér á landi
Kveðja frá Snjólandi!
p.s. sammála Bylgju og Gumma með þennan kóða… hvað er málið hehehe
hahahaha…. það er bara gaman að heyra í ykkur!! fílar og kusur gangandi um göturnar eins og ekkert sé eðliðegra!!
Sæll! Bara fíll á götunni? Hvað ætli svoleiðis kvikindi kosti kominn á götuna?
Allavega, ég er búinn að breyta kóðanum, nú þarf bara 4 stafi… Eruð þið þá ánægðar? Harpa og Bylgja?
Hvað borða kýrnar í Dehli ? Gaman að fylgjast með ykkur og gott að allt gengur vel.
Gaman að lesa fréttirnar frá Indlandi á heimasiðuna ykkar;
Góða ferð… Kærar kveðjur
Emil Karl biður kærlega að heilsa og bíður spenntur eftir myndum frá ykkur, hann á bágt með að trúa því að það séu fílar úti á ´götum á Indlandi en við fundum bók um Indland og þar sáum við allskyns furðuverur. Ætlum að vera dugleg að fylgjasst með:)
Hæ elsku Auður mín (og Begga þó ég þekki þig ekki) er að lesa þetta í fyrsta skipti! vá hvað þetta er allt spennó, hér er ekkert á götunum nema reiðir bílstjórar og slabb…Gangi ykkur vel! =)
Flott að vel gengur. Gleymdi náttúrulega að láta ykkur hafa blöðin góðu, spurning að skanna þau bara og senda ykkur í tölvupósti við tækifæri.
Þurfið þetta náttúrulega ekki fyrr en síðar.
En góða skemmtun og allt það.
Fíllinn
Já ég hef svo sannarlega fengið að finna fyrir því að þið eruð farnar. Svona sérstaklega þegar ég hef ætlað að taka upp símann og hringja í þig Auður…. smá viðbrigði hér fyrir mína!! Það er æðislegt að allt gengur vel og það mun svo sannarlega gera það áfram. Ég fékk kökki hálsinn þegar ég las færslunar… mig langar svo að vera með ykkur ;( … enn það er ekki hægt að gera allt, það er nokkuð ljóst!
(fyrir ykkur hin… þá tengist þetta því þegar ég hitti Beggu í fyrsta skiptið á frjálsíþóttaæfingu uppi í sveit… og kona kom í SITTHVORUM SOKKNUM, náttúrulega alveg rosalegt
Elskurnar mínar, gangi ykkur allt haginn! Bíð spennt eftir næstu færslu!
Sitt hvor sokkurinn Begga!! Þarna þekki ég þig!!!
Bestu kveðjur, Elín Harpa