Hvað gerist næst?

Jæja já… maður er bara ótrúlega duglegur að blogga ;0)

Við Auður hittum Nitali í gær og fórum saman að skoða Red fort og Mosku…. Í Red fort komu til okkar múslímsk fjölskylda (að við höldum)… og tók í hendina á okkur… já við erum bara orðnar nokkuð frægar hérna… þeim fannst þetta alla vega mjög merkilegt ;0) Fórum svo úr sokkum og skóm til að fara inn í eina af stærstu moskunum í Delhi. Við höfðum reyndar ekkert svakalega mikinn tíma þar sem sólin var að fara að setjast og þá megum við ekki vera inni við.

En það er rosalega fínt að hafa hana Nitali… við fáum skutl hingað og þangað ;0) og svo er líka gott að hún talar hindí þannig að hún gat verið munnur okkar í gær ;0)

Við tékkuðum okkur svo út af þessu hóteli í morgun og gistum áreiðanleg með Nitali heima hjá skyldfólki hennar í nótt…. en svo er förinni heitið til Agra á morgun að skoða Taj Mahal ;0) spennó - spennó

Á eftir ætlum við svo að versla okkur einhver föt með mömmu hennar Nitali… hún er nottla indversk þannig að minni hætta er á að það sé eitthvað verið að svindla á okkur ;0) Svo þurfum við líka að kaupa eitthvað sætt fyrir brúðkaupið ;0)

Vitum ekki alveg hvenær við náum að blogga næst… en þangað til … verið hress - ekkert stress og bless ;0)

Indíafararnir…. Begga og Auður… ;0)

15 Responses to “Hvað gerist næst?”


  1. 1 Sævar

    Bið að heilsa í Tasj mahall!

  2. 2 Berglind Ósk

    Sælar Indlands skvísur;)
    hehe….mamma hafði rétt fyrir sér um brúðkaupið!! Það er rosalega gaman að lesa um ferðalagið ykkar og REYNA að ímynda sér eins og einn fíl á rölti um götur bæjarins…..hehe! En sakna ykkar og hlakka til að lesa meira;)
    Kv, frá mér og Einari

  3. 3 Hulda

    Hér kemur eitt komment frá einni píu 4. hæð á Þjóbó. (Eruð örugglega farnar að sakna hlöðunnar nú þegar.) ;)
    Þið fáið greinilega nasaþefinn af því hvað fræga fólkið upplifir á hverjum degi. Þegar þið komið heim verðið þið örugglega alveg hissa á því að fólk glápi ekki á ykkur úti á götu. Það er frábært hversu gott þið hafið það og hversu gott fólk er í­ kringum ykkur.

    Kiss og knús.

  4. 4 Sara Kristin

    hey gellz.,
    vid egill skildum eftir skilabod a hotelinu i gaerkvoldi en svo var klukkan ordin margt svo vid tokum tau og forum ad sofa. stefnir i ad vid forum eitthvert a morgun, erum enn ad akveda hvert. vid verdum samt i bandi og eg fylgist med ykkur og hvert tid erud ad fara. vaeri vel tegid ef tid myndud lata mig vita serstaklega ef tid erud a leidinni eitthvad sudur, hitti reyndar norska stelpu adan sem sagdi ad tad vaeri best fyrir april tvi ta verdur of heitt fyrir sunnan.
    Ok gangi ykkur vel og skemmtid ykkur.
    Sara

  5. 5 egill

    heyho. gaman ad hitta ykkur i gaer. sjaumst vonandi sidar einhverssstadar a indlandi. goda ferd. eb

  6. 6 Hlif

    Va tetta er alveg magnad, filar a roltinu nidur austurveginn imyndid ykkur bara ha. En gaman ad fa ad fara i brudkaup, tad er svo gaman i brudkaupum.
    Njotid alls til hins itrasta og hafid tad gott.

    Hlif

  7. 7 Bylgja

    Jii hvað það hefur verið gaman að sjá FÍL rölta fram hjá!

  8. 8 tumalína

    mjá

    gaman að lesa að allt gengur vel. ég er hress, hætt að breima og ekki týnd. Góða skemmtun og passið ykkur á fílunum. Helga biður að heilsa.

    bisous

  9. 9 Helga Einarsdóttir

    Hæ stelpur! Vildi bara láta ykkur vita að mig langar til að fylgjast með ykkur á flakkinu. Þessir krakkar loða við mann - mörgum árum eftir skólann. Gangi ykkur vel og hafið gaman. kv. Helga.

  10. 10 Lenín

    Skvísurnar á Sunnubrautinni senda æðislega æðislegar kveðjur. Fréttir héðan: Við erum sumsé fluttar inn og búnar að kaupa ísskáp, þvottavél og tvo ógó flotta sófa! Erum mjög heimilislegar og meira að segja komnar með tvö kattabörn. Tveir bílar, stór garður og rósóttar gardínur í öllum gluggum fylgja svo með í pakkanum. Látum vita þegar dagsetningin fyrir brúðkaupið er komin, hehe! ;)
    Knús og kveðjur,
    Lena og Elín

  11. 11 Guðrún Álfheiður

    Sælar stelpur.
    Vá, hvað þetta hljómar allt ótrúlega spennandi. Mun meira spennandi heldur en efnafræðiprófið sem að ég er að lesa fyrir…

    Gaman að fá svona leiðsögn frá innfæddum, og indverskt brúðkaup, það verður fróðlegt. Bestu kv. Guðrún Álfheiður

  12. 12 Lóa (mamma Beggu)

    Heyrði í Beggu í kvöld, allt gott að frétta af þeim stöllum.
    Fara á morgun í 2-3 daga ferð norður í landið og sjá m.a. Gullna hofið.
    Nitali fer með þeim en þær hafa dvalið hjá fjölskyldu hennar undanfarið.
    Það verður gaman að fylgjast með þeim í ævintýraferðinni.
    Lóa

  13. 13 Þórdís Katla

    Sælar.
    Vil bara óska ykkur góðrar skemmtunar úti.

    Með Taj Mahal mæli ég með að fara fyrir sólarupprás og vera á staðnum þegar sólin rís. Þá verður Taj Mahal fallega bleik ;)
    Mun fylgjast með ykkur

    kv. úr hafnarfirði

    Þórdís Katla

  14. 14 Hrafnhildur Ýr

    Gaman að lesa frá ævintýrum ykkar, þetta hljómar allt saman mjög spennandi stelpur :) Ég get alveg viðurkennt að það væri gaman að sjá Taj Mahal…en ég myndi aftur á móti fríka út ef það væri fíll á röltinu í kringum mig ;)
    Ein ást :*

  15. 15 Rósa

    Vá, gaman að fá að kíkja á ævintýraferðina. Þetta er örugglega æsilegra líf en á stigagangi V31… Bestu kveðjur frá nágrannanum og góða ferð! Rósa granni á 31.

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security text shown in the picture. Click here to regenerate some new text.
Click to hear an audio file of the anti-spam word