Við höfum nú yfirgefið Delhi og haldið á vit ævintýranna í Rajasthan. Við hófum ferðalagið reyndar aðeins fyrir utan héraðið, í Agra, þar sem hið marglofaða Taj Mahal er að finna.
Við lentum hérna í gær og fundum okkur ágætis hótel á góðum prís. Við ákváðum að taka fyrsta daginn í það að skoða okkur um í Fatehpur Sikri (40 km frá Agra), draugaborg frá tímum Mughal veldisins. Hún var byggð á valdatíma Akbar (1571-1585) og átti að þjóna sem ný höfuðborg veldisins. Vegna vatnsskorts og erfðira aðstæðna var hún hins vegar yfirgefin stutt eftir dauða hans og hefur síðan þá staðið auð.
Borgin hefur varðveist mjög vel og það var mjög magnað að rölta um hverja meistarasmíðina á fætur annarri. Lítið var um aðra ferðamenn á staðnum sem ýtti enn frekar undir góða upplifun í kyrrðinni..
Við verðum að segja ykkur frá Taj Mahal síðar… Þurfum að fara í rútuferð til Pushkar!

Það hlýtur að hafa verið dálítið sérstakt að ganga um “draugaborgina” Fatehpur Sikri og ekki einu sinni túristar á ferðinni ! Ja, nema allavega tveir. Góða ferð áfram.