Jæja þá erum við stöllur búnar að vera í Udaipur í nokkra daga…..
Fyrir þá sem ekki vita það spilar Udaipur og Indland stórt hlutverk í Bond-myndinni
Octopussy! Enda er hún sýnd hér daglega á hverjum einasta veitingastað… og að sjálfsögðu höfum við Auður séð hana alla a.m.k. einu sinni ;0)
Við fórum í u.þ.b. klukkutíma bátsferð á vatninu hérna til að skoða Ævintýra höllina og Jagmandir höllina. Það má eiginlega segja að þetta séu Feneyjar þeirra Indverja.
Eftir bátsferðina römbuðum við inná eitt hótel við vatnið – þar fengum við að sitja uppi á VIP svölum með útsýni yfir vatnið og fylgdumst
þar agndofa með sólsetrinu og þegar ljósin voru kveikt á höllunum á vatninu. Seinna komumst við líka að því að nokkur atriði í Bond myndinni voru tekin þarna ;0)
Gærdagurinn fór svo í sight-seeing. Leigðum okkur rickshaw fyrir daginn með tveimur stelpum – Zoe frá Ástralíu og Krystal frá Belgíu.
Með þeim sáum við Tiger Lake – eitt af hreinustu vötnunum sem við höfum séð hérna í Indlandi ;0) – Shilpgram – þorp sem hefur verið byggt upp sem túristaþorp –
Ahar – sem er bráðfallegur graf/minningarreitur, þar sem peningar skipta máli- því ríkari sem fjölskyldan er- þeim mun stærri minningarreitur- og þeir eru nokkrir vel stórir þarna.
Við máttum ekki taka myndir í þessum garði en einn starfsmaðurinn kom til okkar og sagði að við gætum tekið nokkrar myndir – við yrðum bara að gera það MJÖG laumulega… þannig að við lágum þarna
í leyni og skutum nokkrar myndir – ja kannski ekkert ósvipað og Bond!! Rúsínan í pylsuendanum var svo Monsoon Palace – sem má segja að sé fallegri utan frá heldur en innan – og að sjálfsögðu í
sólsetrinu ;0) Maður hefur víst ekki verið í Udaipur nema að hafa séð sólsetrið við þessa höll…. eða svo hefur okkur verið sagt…. og við trúum því bara ;0)
Í morgun máluðum við svo fíla á pappír undir leiðsögn kennara. Maður fékk nú ekki alveg að ráða því sjálfur hvernig maður gerði
– hmmm hvað segja leikskólakennararnir um það??? – en útkoman var bara ótrúlega góð þó við segjum sjálfar frá ;0) Í Pushkar skelltum
við okkur líka á trommunámskeið – þar sem við sátum nánast sveittar í nokkra klukkutíma og börðum bumburnar (ja eða sko trommurnar ;0)
– um kvöldið var svo hittingur niðri við vatnið þar sem nokkrir nemendur komu saman og spiluðu með kennaranum – að sjálfsögðu við sólsetur ;0)
Það er ótrúlegt að það er ekki nema vika eftir af dvöl okkar hérna í Indlandi en í kvöld er förinni heitið til Jaisalmer þar sem við ætlum
að skella okkur í kamel safari. Þar er víst sofið undir berum himni þannig að það er eins gott að vera í þykkum sokkum svo að snákarnir bíti ekki í tærnar!!
Við látum heyra í okkur þótt síðar verði –
Auður og Begga -

Nýjustu komment