…. að við erum farnar að setja inn myndir…. Jehú!! Endilega kíkið og svo megiði líka alveg vera dugleg að kvitta…. það er svo gaman að sjá hverjir fylgjast með ;0)
Annars komum við úr 12 tíma rútuferðalagi í morgun…. loksins lentar í Jaisalmer… í fyrramálið er það svo 3 nátta kamel safarí í eyðimörkinni. Þannig að þið eigið ekki eftir að heyra neitt frá okkur á næstunni ;0)
Knús til ykkar allra ;0)
Auður og Begga

Frábærar myndir, Emil finnst þið eins og prinsessur:) Ekki leiðinlegt hrós það! Sofiði vel í ferðinni, er það ekki bara íslenskir ullarsokkar sem duga;)
Kveðja úr vetrarríkinu
Sælar stelpur!
Kannski best að kvitta fyrir sig þar sem maður er nú að fylgjast með! Rosalega gaman að lesa hvað á daga ykkar drífur og ekki er verra að sjá myndirnar! Þið hafið ekki lent í neinni “indverskri pest” þarna ennþá? Vona að ekkert slíkt gerist og að þið njótið ferðarinnar áfallalaust.
Bestu kveðjur,
Hugrún.
Hæbb
Nú er ég búinn að bæta við tenglinum ‘Kort’ hérna uppi, það sýnir helstu staði sem stelpurnar hafa verið að heimsækja…
Flott hjá Sævar að setja inn kortið yfir staðina sem stelpunrar hafa verið að heimsækja.
Skyldu þær detta af baki í ferðinni ???
Ekkert smá gaman að sjá myndir. Þetta er ótrúlegt ævintýri hjá ykkur. Vona að þið skemmtið ykkur vel í kamel safaríi
Bestu kveðjur
Hæ hæ stelpur!
Og ennþá skemmtilegra að sjá myndir.. Hafið það sem best og njótið þess í botn að vera ungar, villtar íslenskar meyjar í útlöndum ;P
Rosa gaman að fylgjast með ævintýrunum ykkar
Hæ! Loksins get ég sent athugasemd! Get það ekki á tölvunni heima. Gangi ykkur vel í kamelferðinni. Ég var að lesa að ferðaskrifstofa bænda veitir upplýsingar um gistingu hjá fjölskyldum í Kína.
Gangi ykkur vel.
Pabbi Auðar
Takk Sævar
Gaman að fylgjast með ferðalöngunum á kortinu. Góða ferð áfram, stelpur.
Gaman að heyra frá ykkur, þetta hefur nú verið spennandi þarna í kamelferðinni! Bestu kveðjur og góðar óskir, Ranna.