Drottningar eyðimerkurinnar

Þá erum við komnar aftur í ,,siðmenninguna”…. eftir 4 daga útlegð í
eyðimörkinni hérna í vesturhluta Indlands. Loksins kemst maður í sturtu
og getur notað ,,venjulegt” klósett!! ;0)

Við lögðum af stað árla morguns síðastliðin fimmtudag (að ég held…
maður er alveg gjörsamlega orðinn ruglaður í vikudögunum…). Við vorum
keyrðar út í eyðimörkina ásamt Rhonu (Skotland), Demi (England) og
Andrew (Ástralía). Þau voru með okkur í 2 nætur og 3 daga og fóru því
til baka degi á undan okkur.

Þegar komið var á staðinn var vippað sér beint á kamelinn og tölt af
stað út í auðnina. Það tók auðvitað smá tíma að venjast kamelinum -
sérstaklega þegar hann stóð upp- þá var nú betra að halda vel í söðulinn
og halla sér aftur. Fyrsti dagurinn var frekar rólegur - bara farið fetið
nema hjá henni Auði sem var svo ,,heppin” að fá að sitja einn kamelinn
sem var í tamningu. Sem betur fer var einn kamel ,,ökumaðurinn” með henni
því að á tímabili leist mér ekkert á blikuna… kamelinn hélt greinilega
að hann væri orðinn kanína og stökk yfir hverja eyðimerkurplöntuna á
fætur annarri… en hún Auður hélt sér sko á baki… og húfan var sem
betur fer á sínum stað ;0) Inná milli heyrðust svo hlátrasköllin í henni
… þau þustu út í bláinn og ég sá hana ekki aftur fyrr en í náttstað..
en þá hafði hún verið búin að tölta þarna um mörkina og fá chai á næsta
bóndabæ ;0)

Maturinn var eldaður við frumstæðar aðstæður, svo að ekki sé nú minna
sagt. Sprekum var safnað saman og smá eldur kveiktur. Nokkrir hentugir
steinar úr nágrenninu var safnað saman til að útbúa hlóðir og svo hófst
eldamennskan. Yfirleitt fengum við einhvers konar dal (sósujukk með
kartöflum, blómkáli og lauk), hrísgrjón og chapati. Kamel leiðsögumönnunum
fannst mjög gaman að kenna okkur að búa til chapati og má segja að við
séum orðnar útlærðar í þeim efnum. Við lærðum líka að búa til chai - en
yfirleitt fengum við einn bolla áður en matartíminn hófst.

Svo var bara borðað á teppum í sandinum- með höndunum af bestu lyst ;0)
Það var bara ótrúlegt hvað maturinn smakkaðist vel. Við, ásamt ferðafélögum
okkar, rákum svo upp stór augu fyrsta daginn þegar átti að fara að ,,vaska”
upp…. hmmm já í miðri eyðimörkinni… engin uppþvottavél þar! Nei nei
diskunum var bara skellt í sandinn og þeir svo nuddaðir hreinir… Já
það má segja að maður sé alveg hættur að vera hræddur við skít eftir þessa ferð!

Eftir kvöldmat sátum við svo yfirleitt dágóða stund við varðeldinn og sungum -
við og svo kamel gaurarnir til skiptis…

Svo kom tími til að útbúa rúmin… sem voru bara teppi á sandinum…
svo lagðist maður bara á bakið og naut þess að horfa á stjörnurnar ;0)
Yfirleitt vaknaði maður svo við sólarupprás - enda enging myrkratjöld
að finna þarna í eyðimörkinni.

Við sáum þó nokkur dýr af ýmsu tagi á ferð okkar - stökkvandi antílópur,
kýr, hesta, geitur, kindur, fálka og örn… en enga snáka.. sem betur fer!

Nokkur þorp urðu á vegi okkar og var fólk mjög glatt að sjá okkur. Börnin
þustu að og spurðu okkur um penna, súkkulaði og rúbíur en þegar við höfðum
ekkert af þessu vildu þau endilega að við tækjum myndir af þeim. Það fyndna
er að maður þarf að biðja þau um að brosa því um leið og myndavélin beinist
að þeim verða þau grafalvarleg en bros færist um leið og myndin er tekin -
og að sjálfsögðu vilja þau endilega sjá! ;0) Margir vildu endilega að við gistum
eða fengjum okkur alla vega chai… svo var fólk mjög áhugasamt um fötin okkar
… hmm já hvernig virkar þessi rennilás?? Ein konan brýndi líka mjög fyrir
okkur að nota sólarvörn!! Já það er nú gott að vera minntur á það ;0)

Á leiðinni heim var svo skorað á mig að djóka í bílstjóranum og keyra jeppann….
ég taldi það nú bara sjálfsagt og tók nokkra gutta þarna á rúntinn út í miðri
eyðimörk… og þeim þótti ég nú bara vera nokkuð góður bílstjóri… það fór svo
á endanum að ég keyrði svo til baka til Jaisalmer frá eyðimörkinni. Ég tók
fram úr nokkrum hertrukkum.. nokkrir með skriðdrekum, aðrir með hermönnum…
og ég held að nokkur augu hafi dottið á veginn… þar sem konur undir stýri
eru sjaldséðir hvítir hrafnar hér á slóðum… ;0) En allt gekk þó vel og
engar kýr biðu tjóns eftir þessa ökuferð mína ;0)

Það væri áreiðanlega hægt að skrifa endalaust um þessa eyðimerkurför.. en
það bíður bara betri tíma…. ;0) Á morgun bíður okkar svo 18 tíma lestarferð
(að ég held) þar sem við endum í Delhi. Þar verður síðasta nóttin okkar
í Indlandi… og svo er það bara Bangkok!!

Kveðjur frá eyðimerkurförunum…. ;0)

ps. við göngum bara ótrúlega uppréttar eftir þessa fjögurra daga ferð ;0)

4 Responses to “Drottningar eyðimerkurinnar”


  1. 1 Marie Christine et Philippe Privat

    Chère Audur, Nous venons de faire une très belle balade avec les Privat et des amis Suisses dans le Vercors ; Nous avons pensé à toi et à ton aventure en Inde ; Nous te souhaitons un bon voyage et plein de découvertes ; Amitiés, Jean Yves et Michèle ; P.S Sólblóm va bien et attend les beaux jours !

  2. 2 Lóa (mamma Beggu)

    Þetta er nú meira ævintýrið.
    Verður gaman að sjá myndr úr safaríferðinni.
    Og nú á að taka Thailand með stæl :))
    Njótið þess í botn stúlkur mínar.

  3. 3 eva bjarnadóttir

    gaman að lesa um ævintýrin ykkar.. er náttúrulega ógeðslega öfundsjúk ;-) ég fór einmitt í kamelferð í kenya með pabba og agli, en mér var nú reyndar ansi illt í rassinum eftir 2ja daga setu á þessum slánum svo ég dáist af ykkur að hafa meikað fjóra!!! góða ferð áfram

  4. 4 Steingerður

    Þær verða ekki í vandræðum með uppvaskið í framtíðinni, Desertdrottingarnar okkar, alltaf stutt í næsta sandkassa. Vona að þið lendið mjúklega í Tælandi, gangi ykkur vel þar.

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security text shown in the picture. Click here to regenerate some new text.
Click to hear an audio file of the anti-spam word