Við lentum í Taílandi í gær í miklum raka og um 30 stiga hita.
Við fundum okkur hótel á Khao San, mjög líflegri götu, með sundlaug á þakinu. Maturinn er ljúffengur, sérstaklega steiktu pöddurnar með mjúku fyllingunni sem hægt er að kaupa af götusölum.
Við ætlum að koma okkur til Koh Phangan á morgun. Það er lítil eyja við austurströnd Taílands. Strandaparadís með böngalóum og ruggandi hengirúmum… Þaðan er stutt yfir til Ko Tao ef við skyldum vilja kíkja í undidjúpin.
Þegar við vorum á röltinu í gær gengum við framhjá stað þar sem þreyttir ferðalangar lágu á bekkjum og fengu slakandi andlitsnudd. Það er líklegast næsti viðkomustaður okkar eftir netkaffið
Bestu kveðjur til ykkar allra frá Taílandi!
Auður og Begga

Það er nú líka að hlýna hjá okkur. kv. Helga R.E.
Guð hvað ég öfunda ykkur, sit hér í skólaverkefnum upp yfir haus;)Frábært að geta fylgst með ykkur á korti :Þ
Það verður gaman að fylgjast með ævintýrum ykkar í Thailandi og vonandi fáum við að sjá myndir því til staðfestingar. Ykkur ætti að hlýna svolítið núna í hitanum!! Frábært að átta sig á ferðalaginu á kortinu.
Kveðja frá liðinu í Viðarás
Frábært að fylgjast með ævintýrum ykkar! Maður fer nú í smá ferðalag í huganum þótt það sé erfitt að ímynda sér allt það sem þið eruð að upplifa á hverjum degi! Gangi ykkur áfram vel á ferðalaginu
hehe ja tau voru sama parid, held vid hofum hitt tau i the German Bakery i Pahar Ganj. Jamm… eg held ad allt tetta folk se a nokkurn vegin somu slodum hehe
annars hef eg tad mjoooog gott nuna, er ad ferdast med kana sem fer mjog vel med sjalfan sig og mig eins og tid hafid kannski lesid ur blogginu minu. Hlakka ekkert sma til ad fara til thailands lika
skemmtid ykkur vel!
Sælar sætu indversku skvísur;)
Alltaf jafn gaman að lesa um ferðalagið ykkar…..og skoða myndirnar af ykkur;) Sakna ykkar samt rosa mikið - knús og kossar frá mér!!
Hljómar vel þetta með andlitsnuddið en ekki eins vel þetta með pöddurnar með fyllingunni??? Bestu óskir og kveðjur, Ranna.
hehhe…. vá hvað þetta er allt frábært!!!
Þetta er bara eins og í Lion King myndinni: ,,…þessar með mjúku fyllingunni”
hahaha
Ég sé það alveg ljóslifandi fyrir mér hvernig Auður skoppast um á Kamel dýrinu, vá hvað ég væri til ní að vera þarna með ykkur!!
Besta sönnun þess er líklegast þessi, ég dreymdi ykkur í nótt!! Við allar vinkonurnar vorum í einhverri veislu, allt í einu opnast hurðin með miklum látum og Begga stekkur inn og segir SUPRISE… Við ákváðum bara að koma fyrr heim!! En svo komst þú Auður á eftir henni með þvílíka skeifu á munninum, í svarta nýja jakkanum mínum sem ég var að kaupa (veit ekki alveg hvar þú náður í hann…en hvað um það) og svo varstu alveg rosalega brún í framan! En ég verða að hryggja þig aðeins, þetta var ekki sólarbrúnka! Heldur varstu búin að klína svo miklu brúnku kremi framn í þig og sólarpúðri. Þú varst svo ferlega fúl yfir því að fá svona stuttan tíma til að “vörka tanið”…hahaha… bara alls ekki jafn brún og þú ætlaðir þér að verða! Þú ætlaðir sko ekkert að fara heim strax og varst bara svo ósátt við hana Beggu meðan hún hoppaði um af kæti með okkur hinum, af því að við vorum náttúrulega voða fegnar að fá ykkur heim…. algjör snilld. Þetta var náttúrulega það fyrsta sem ég sagði við Höllu í skólanum í morgun… og Lena hló ekki lítið af þessum draum…haha
Veit ekki alveg afhverju Beggu lá svona á að fara heim… draumurinn náði ekki svo langt!! Vona bara að þið hafið það ofsalega gott stelpur mínar
Jæja, þetta er nú orðið annsi langt komment
RISA KNÚS!
Elín Harpa
Hahahahahaha!
Já, ég er einmitt fyrst og fremst á flakki til að vörka tanið!
Við erum reyndar búna að vera að sleikja sólina hérna á Koh Phangan undnfarna daga og bara með furðu góðum árangri. En það er nú bara bónus
Ég stórefast um að þessi draumur rætist…
Takk fyrir kommment
Bið að heilsa!