Himininn hefur grátið með mér frá því um miðjan daginn í gær.
Þá fékk ég að vita það… Ég get ekki kafað! Annað sinn sem ég fæ neikvætt svar frá lækni, þrátt fyrir að hafa passað mig á því að taka ekki inn maralríulyfið Lariam í þetta skiptið….
Nú var það skútabólgan. Eins gott að maður losi sig við hana í eitt skipti fyrir öll þegar heim er komið!
En Begga hetja er einhvers staðar í undirdjúpunum þessa stundina. Ég held þau hafi ætlað niður á tólf metra dýpi í dag. Átján metrarnir verða teknir síðasta daginn. Hún er í hóp með tveimur Svíum, systkynum á aldur við okkur.
Ég hitti fyrir einn Ísraela áðan. Hann náði sér í kafararéttindin í sínu heimalandi. Þar er það víst ódýrara og ekki síðra. Minni túrismi, falleg kóralrif og leiðbeinendurnir allir með mjög mikla reynslu að baki, langflestir hafa þjónað hernum sem kafarar í nokkur ár…
Ætli ég skelli mér ekki bara til Ísrael í næstu bakpokaferð? Amma, yrðiru sátt við það??
Það kom mér svolítið á óvart hversu margir Ísraelar eru á flakki. Hér er annar hver maður Ísraeli, hinn er Svíi. Flestir Ísraelar ferðast eftir herskylduna – þrjú ár fyrir drengi, tvö fyrir stúlkur. Ortel og Aviram eru dæmi um það – systkynin sem við hittum í Puskhar.
Ég manaði mig í að spyrja þau um ástandið í landinu kvöldið eftir mótorhjólaferðina. Þau sögðu það í lagi, að sjáflsögðu utan Gaza svæðisins. Það væri reyndar mjög mikið eftirlit, lögregluþjónar vel sjáanlegir alls staðar og öryggisverðir þar sem lögrelguþjónarnir væru ekki…
Aviram gengur í skóla rétt við Gaza svæðið. Hvenær dags sem er á hann von á því að heyra í viðvörunarlúðrunum og taka á rás niður í eitthvert byrgið.
Þrátt fyrir að hafa setið á sama borði og þetta fólk, spjallað við það og eitt góðum degi með því á ég mjög erfitt með að ýminda mér aðstæðurnar sem þau lifa við, þá sérstaklega Aviram. Og hann hefur það án efa mjög gott miðað við marga…
En já.. Himininn virðist ætla að halda aftur af tárunum í bili og ég hef nú ekkert grátið, satt best að segja. Ég hefði að sjálfsögðu viljað kafa – en hvað um það. Nóg annað að gera : ) Ég er að lesa mjög spennandi bók, strendurnar hér eru fallegar og nóg af myndum inn á vélinni sem hægt er að setja inn á síðuna….
Bisous!
Oeuf dur – harðsoðna eggið… (bara smá brunnin á öxlunum samt ;))

Nýjustu komment