Núna erum við ferðapíur opinberlega búnar að yfirgefa Tæland og búnar að koma okkur yfir til Laos. Í leiðinni pikkuðum við upp annan ferðalang sem ætlar að skoða sig um með okkur. Ann, sem við kynntumst á Koh Tao, ætlar að ferðast með okkur um einhvern óákveðinn tíma þar sem bróðir hennar er farinn heim. Því fleiri þeim mun betra… er ekki máltækið svoleiðis??
Til að komast hingað yfir til Laos tókum við svokallaðan ,,slow boat” niður Mekong ána. Þessir bátar eru svosum ekki slæmir…. nema að maður sé 6 tíma annan daginn og 8 tíma hinn daginn!! En það þurftum við að gera til að komast hingað. Ég er ekki frá því að rassinn hafi andast á tímabili eftir að hafa setið á þessum hörðu trébekkjum – en hann er held ég að lifna við aftur ;0) Útsýnið var líka dásamlegt og bætti algjörlega upp trébekkina ;0)
Í dag höfum við verið að hjóla útum hvippinn og hvappinn… í öllum hitanum, get alveg sagt ykkur það að svitakirtlarnir eru í góðu standi hjá okkur ;0) Á morgun er svo planið að kíkja annað hvort á fossana eða hellana sem eru staðsettir rétt fyrir utan bæinn. Annars hefur ekki verið mikið annað planað – en það hlýtur að skila sér á einhverjum tímapunkti. Það er svosum ekki mikið til að stressa sig yfir hérna.
Það eru örlítil viðbrigði að koma hingað yfir til Laos. Landið er ekki alveg orðið jafn vestrænt eins og Tæland og tungumálið örlítið öðruvísi (ekki að við getum greint það að miklu leyti). Hérna kostar líka allt ,,MIKLU” meira… eða þannig… maður er að borga 15.000 til 20.000 fyrir matinn og fyrir hjólaleiguna á þremur hjólum borguðum við 110.000. Svolítið fyndið líka að þurfa svo að fara í hraðbankann og spá í því hvort maður ætti að taka út 500.000 eða hvort það dugi og að maður ætti kannski bara að taka út eina milljón ;0)
Já svona er lífið ;0) Við látum heyra í okkur síðar…
Ps. Endilega skoðið myndirnar - erum búnar að setja inn nokkrar nýjar ;0)

Nýjustu komment