Núna erum við ferðapíur opinberlega búnar að yfirgefa Tæland og búnar að koma okkur yfir til Laos. Í leiðinni pikkuðum við upp annan ferðalang sem ætlar að skoða sig um með okkur. Ann, sem við kynntumst á Koh Tao, ætlar að ferðast með okkur um einhvern óákveðinn tíma þar sem bróðir hennar er farinn heim. Því fleiri þeim mun betra… er ekki máltækið svoleiðis??
Til að komast hingað yfir til Laos tókum við svokallaðan ,,slow boat” niður Mekong ána. Þessir bátar eru svosum ekki slæmir…. nema að maður sé 6 tíma annan daginn og 8 tíma hinn daginn!! En það þurftum við að gera til að komast hingað. Ég er ekki frá því að rassinn hafi andast á tímabili eftir að hafa setið á þessum hörðu trébekkjum – en hann er held ég að lifna við aftur ;0) Útsýnið var líka dásamlegt og bætti algjörlega upp trébekkina ;0)
Í dag höfum við verið að hjóla útum hvippinn og hvappinn… í öllum hitanum, get alveg sagt ykkur það að svitakirtlarnir eru í góðu standi hjá okkur ;0) Á morgun er svo planið að kíkja annað hvort á fossana eða hellana sem eru staðsettir rétt fyrir utan bæinn. Annars hefur ekki verið mikið annað planað – en það hlýtur að skila sér á einhverjum tímapunkti. Það er svosum ekki mikið til að stressa sig yfir hérna.
Það eru örlítil viðbrigði að koma hingað yfir til Laos. Landið er ekki alveg orðið jafn vestrænt eins og Tæland og tungumálið örlítið öðruvísi (ekki að við getum greint það að miklu leyti). Hérna kostar líka allt ,,MIKLU” meira… eða þannig… maður er að borga 15.000 til 20.000 fyrir matinn og fyrir hjólaleiguna á þremur hjólum borguðum við 110.000. Svolítið fyndið líka að þurfa svo að fara í hraðbankann og spá í því hvort maður ætti að taka út 500.000 eða hvort það dugi og að maður ætti kannski bara að taka út eina milljón ;0)
Já svona er lífið ;0) Við látum heyra í okkur síðar…
Ps. Endilega skoðið myndirnar - erum búnar að setja inn nokkrar nýjar ;0)

Hæ hæ Begga. Ég ætla að fá páskaegg með bláum unga bara svona eitthvað strumpa….nei bósa ljósapáskaegg - er það til?? hvernær verður það til? Ég var í fermingarveislu í Borgarnesi í dag…það er alveg við hliðina á Akranesi. Ég var að hlaupa út um allt með strákunum í byssó. qjkonbvfo bæjó Jason
Hæ stúlkur.
Kannski að maður smelli einu í frystinn…. hvað segiru um það Begga ?? númer 5 eða svo..
Þið passið ykkur að detta ekki útbyrgis á þessum slow bátum.
Gott að þið fóruð ekki til Tíbet núna…
Sendum ykkur nóa páskaegg eftir netlínunum
kv frá Fosstúni þar sem vorilmur er komin í loftið svei mér þá…
Sælar stelpur mínar
Það er nóg að gera hér á klakanum, Svíar hér í heimsókn í vikunni, nóg að gera í skólanum og við stöllurnar alltaf að vinna. Nú svo er hún Tumalína komin í tímabundið fóstur til okkar. Hún var nú svolítið hissa á þessu öllu saman fyrst, enda komin á yfirráðarsvæði Monsu og Kraga. Þannig að hún sat bara undir stól eða plantaði sér inni í eldhúsi og urraði og kurraði á Monsu og Kraga sem voru frekar sama um hana. En stelpan þekkti Ellu frænku og var róleg í fanginu hjá henni
Við verðum þó að játa það að Tumalína gerðist svo kræf að stinga af út og vera týnd í heila nótt. Við Lena nöguðum á okkur neglurnar og höfðum miklar áhyggjur þar sem hún er nú ekki með ól og vorum ekki vissar um að hún hefði alltaf fengið pilluna sína, en hún skilaði sér til baka og er allt önnur kona og lætur eins og heima hjá sér. Monsa er þó ekkert sérlega kát og hvæsir á móti. Hahaha…
Hafið það sem allra best!!
þið skellið ykkur bara á eina millu út úr bankanum, er það ekki?
Já, það er nóg um að vera á Sunnubrautinni
Bestu kveðjur, Elín Harpa og Lena
Þetta líst mér vel á, Tumalína, að þú skulir vera farin að skoða heiminn. Kannski þú skellir þér bara á slow boat til Kína ? Þú fengir að minnsta kosti góðan félagsskap – og hvað segir ekki máltækið, því fleiri þeim mun betra
Jökullinn í garðinum er aðeins farinn að hopa, annars áttar maður sig ekki alveg á því hvort eru að koma jól eða páskar því það var lítið stelpuskott með jólasveinahúfu að leika sér á snjófjallinu hér fyrir utan í gær – og þó, búðirnar eru fullar af páskaeggjum.
Hafið það gott í hitanum í Laos og gangi ykkur vel:)
Ég reyni að skrifa en ekkert kemur en gangi ykkur vel.
Pabbi Auðar Allt í einu gat ég sent!