Archive for mars 23rd, 2008

Rútuferð…

Þá er enn ein sérdeilis prýðileg rútuferðin afstaðin.
Við lögðum í hann frá Vang Vieng klukkan eitt að hádegi. Við vorum sóttar upp að dyrum hótelsins og svo var tekinn smá rúntur um bæinn í leit að fleiri ferðalöngum. Þegar þeir voru komnir í leitirnar héldum við að langferðabílnum fyrir virkilega mikilvæga fólkið.

Tíminn leið alveg ótrúlega hratt þrátt fyrir mikinn hita og svita og áður en við vissum var klukkan orðin hálf sex og við stöllurr lentar í sjálfri höfuðborginni, Vientiane. Við röltum um götur borgarinnar í leit að einhverju ætliegu og létum tímann líða þar til næsta rútuferð tæki við. Það reyndist vera túk túk ferð í um klukkutíma að næstu rútu og sú rúta var sko alls ekki slæm. Bara sú allra besta sem við höfum nokkrun tíma stigið fæti inní. Við erum að tala um rúm með kodda og sæng og þetta líka fína kareokie í tækinu. Við áttum þarna ljúfa nótt og lentum í Pakse um klukkan sjö að morgni dags. Við tókum túk túk að næstu rútustöð og þaðan voru um þrír og hálfur tími að staðnum þar sem báturinn beið okkar… Já, eftir aðeins um tíu mínútna bátsferð vorum við komnar á leiðarenda! - til Don Det, einnar af fjögur þúsund eyjunum sem áin Mekong myndar hér í suður Laos.

Ég held að pallbílaferðin hafi verið sú skemmtilegasta í þessari ferðaseríu. Þar vorum við Begga í algjörum minnihluta, einu Evrópubúarnir og í raun einar um það að vera ekki af asísku bergi brotnar. Það voru þó þrír aðriri ferðalangar með í för, ein stúlka frá Kóreu og eitt par frá Kína. Sú kóreiska var mjög skemmtileg. Hún hafði verið að ferðast um í Kína og gerðist því sjálfskipaður túlkur hópsins. Hún náði að tjá sig eitthvað á kínversku og spjallaði af bestu getu við alla Lao-ana á þeirra máli. Hún reyndi meira að segja að fá útskýrigu á því af hverju svo margir karlmenn frá Laos safna nöglinni á litla putta vinstri handar. Þeir virðast klippa allar neglur reglulega en litlafingursnöglin virðist fá að dafna óáreitt. Ég held reyndar að þeir snyrti hana til, geri hana jafn vel aðeins beittari og fínni… Við fengum því miður ekkert svar - hafið þið einhverja hugmynd?

Fyrir utan skemmtilegar samræður áttum við nokkur góð stopp á leiðinni þar sem pallbílinn umkringdist af sölukonum með ýmsa matvöru til sölu. Þær tróðu vörunni inn um öll skúmaskot og í fyrsta stoppi fylltist pallurinn nánast af einhvers konar rótarávexti. Hann líktist helst næpu en bragðaðist þó alls ekki eins. Einn Laomannanna var svo almennilegur að gefa okkur að smakka :)

En þar sem ég er nú farin að tala um rútuferðir verð ég eiginlega að segja ykkur frá því sem kom fyrir í einni slíkri á Indlandi.
Við vorum á ferðalagi um Rajastan, á leðinni milli Agra og Ajmer (Puskhar). Þetta var næturrúta og á þeim tíma sem við vorum þarna var ansi kalt á nóttunni eða rétt um fjórar gráður á celcius. Við vorum í svokölluðum sleeper - rútan var í raun tvískipt, sæti fyrir neðan og rúm fyrir ofan. Við höfðum komið okkur vel fyrir, dregið gardínurnar fyrir og áttum fyrir höndum um tíu tíma rútuferð.

Eftir aðeins um hálftíma hafði rútan stoppað tvisvar, sennilega til þess að taka uppí fleiri farþega. Það er nú svo sum ekki frásögu færandi nema fyrir það að þegar við erum að leggja i hann á heyrum við þetta líka svakalega brothljóð. Við lágum inni í kelfanum okkar og fórum að ímynda okkur alls kyns hluti. Einhverjir fóru að sópa upp glerbrotunum og svo var haldið í hann. Í hvert skipti sem við áðum eftir atvikið heyrðist kallað Jaipur.. og eitthvað meira mas. Þegar við komum loks á þann stað (Jaipur) fengum við að vita ástæðuna. Framrúaðan hafði gjörsamega smallast og greyið bílstjórinn hafði keyrt í nístings kulda í um fjóra tíma með enga framrúðu! Við skiptum um rútu í Jaipur, þ.e. tróðum okkur einhvers staðar þar sem enn var pláss og náðum að sofa alveg ótrúlega vel sitjandi í þrönginni.

Við verðum hérna á Don Det til 25. mars en þá er förinni heitið yfir til Kambódíu.

Hafið það gott og gleðilega páska!

Kveðja,
Auður