Lystisemdir Nah Trang

Jú við Auður erum alltaf að vinna í því að fikra okkur lengra upp Víetnam. Erum núna staddar í Nah Trang, sem má segja að sé nokkurs konar strandbær.

Vorum svo ótrúlega heppnar að í gærkvöldi var okkur skutlað af Papa Hahn (engar áhyggjur, þið fáið áreiðanlega að heyra allt um hann síðar ;0) á veitingistað í ábyggilega 2km fjarlægð þar sem við gistum. Á þessum veitingastað mátti einungis sjá innfædda… enda var matseðilinn á víetnömsku. Papa Hahn hjálpaði okkur að panta og fengum við á borðið okkar dýrindis grillaðar rækjur og heilgrillaðan fisk. Þetta var bara ljúffengt og bragðgott…. held að ég fái bara vatn í munninn við tilhugsunina ;0)

Annars afrekaði ég það í dag að fara í mína fyrstu köfun sem viðurkenndur kafari. Ég var að sjálfsögðu mjög stolt af því að geta sýnt bráðabirgðaskírteinið mitt…. og geta sagt það að sjálfsögðu kunni ég ,,táknmálið” ;0) Ég get nú ekki sagt að ég hafi þurft að hafa mikið fyrir hlutunum. Græjunum var pakkað og komið um borð fyrir mig, settar upp og gengið frá á eftir. Ég þurfti ekki einu sinni að koma mér í froskalappirnar sjálf ;0) Kafaði tvisvar og verð að segja að undirdjúpin hér eru mjög svipuð og í Tælandi. Sá kannski örfáa öðruvísi fiska, marglyttu og svo nokkur fiskabörn - sem voru að sjálfsögðu ógurlega sæt ;0)

Eftir köfunina skelltum við Auður okkur svo á hjólum í spa. Já maður verður nú að verðlauna sig fyrir svona ,,erfiðisvinnu”. Byrjuðum á því að drulla okkur út í leðjubaði og skelltum okkur svo í ýmsar sturtur, potta og sundlaugar. Það var alveg hreint dásamlegt að láta þreytuna líða úr sér á þessum fallega og skemmtilega stað…. og já það má nú svona til gamans geta að þetta var HEITT vatn! ;0)

Annars fáið þið ekkert að heyra frá okkur fyrr en eftir 5-6 daga þar sem við erum að fara á mótorhjólum inní landið. Þá fáið þið eflaust líka að heyra eitthvað um Papa Hahn og the Easy Riders… ef þið verðið stillt og þæg börnin góð ;0)

Kveðja

Begga….. aka mótorhjólapían ;0)

1 Response to “Lystisemdir Nah Trang”


  1. 1 Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir

    Gott að heyra að þið gátuð slakað aðeins á, það veitir nú ekki af eftir þetta allt saman. Þetta hlýtur að verða ógleymanleg reynsla í farteskið. Bestu kveðjur frá Íslandi, þar sem vorið er farið að banka á gluggann ( yfir frostmark og logn)

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security text shown in the picture. Click here to regenerate some new text.
Click to hear an audio file of the anti-spam word