Erum enn á lífi…

…. ótrúlegt en satt eftir alla kílómetrana sem við höfum lagt að baki á undanförnum vikum….

 Ætla bara rétt að láta ykkur vita að núna erum við komnar til Cat Bá/Halong Bay í norður Víetnam. T’ókum sem sagt að ég held bara hálfa Víetnam á síðastliðnum sólarhring. T’ókum smá stopp í Hué þar sem við skoðuðum Citadelið (hmmm veit einhver íslenska orðið??). Héldum reyndar að við myndum andast þar úr hita og svita…. hann gjörsamlega lak af okkur bara við það að hugsa.

Hérna ætlum við að vera í nokkra daga… plönuð er bátsferð/kajakaferð á morgun og hinn dagurinn fer í göngur hérna um þjóðgarð eyjunnar. Svo er það bara Kína eftir 4 daga þar sem við munum hitta Sævar….

Kveð ykkur í bili….

Begga - orðin útsjóuð í rútu-/báts- og mótorhjólaferðum…. ;0)

1 Response to “Erum enn á lífi…”


  1. 1 Lóa (mamma Beggu)

    Alltaf jafn gaman að frétta af ykkur og ævintýrunum.
    Reynið nú að hvíla ykkur í Kína.
    Vildi vera fluga á vegg þegar þið farið að tala-leika á kínversku….
    Gangi ykkur vel að komast yfir landamærin.. þau síðustu í ferðinni..
    kv frá Fosstúni þar sem allt er á kafi í snjó…

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security text shown in the picture. Click here to regenerate some new text.
Click to hear an audio file of the anti-spam word