Jæja, ég ætla aðeins að troða mér hérna að…
Ég flýg í fyrramálið 13. apríl kl. 7:40 að íslenskum tíma til móts við Auði og Beggu. Ég býst við að hitta þær um miðjan daginn 15. apríl að kínverskum tíma! Ég flýg um London til Hong Kong, þaðan tek ég 17 tíma næturrútu til Nanning, og hitti vonandi stelpurnar þar á þriðjudaginn eins og áður sagði. Stelpurnar fara frá eyjunni sem þær eru á til Ha Noi, höfuðborgar Víetnam, og taka þaðan rútu yfir landamærin. Nanning er í um 4 tíma fjarlægð frá landamærum Víetnam. Við verðum vonandi öll á lífi eftir allt þetta ferðalag! Hérna er svo smá kort af hittingnum:
- Sævar, spenntur að leggja í’ann

ha ha ha… gat ekki annað en hlegið.. tvær stúlkur og einn strákur í rútuferð…
Flott hjá þér Sævar að sýna okkur ferðalögin og hittingin hjá ykkur.
Gangi ykkur vel…
kv úr snjóabænum á Selfossi
Hver verður fyrstur til Nanning ? Fylgjumst spennt með
Gangi ykkur vel…