Ruðua Rittódsgylrö

Fisléttur bakpokinn kominn á axlirnar, vegabréfið á sínum stað og nóg af auka nærbuxum. Forgangsröðun! Það er fyrir öllu!
Hún leggur upp í sitt annað bakpokaferðalag. Fjögur ár liðin frá fyrri reisu og útþráin fyrir löngu farin að segja til sín.
Ekki svo að skilja að henni líki illa á klakanum. Þetta langtíburtistan togar bara alltaf í hana.

Það mætti segja að fyrsta og sárasta þorstanum hafi að einhverju leiti verið svalað þegar hún hélt til Frakklands árið 2001 í eins árs skiptinemadvöl. En það var þó aðeins byrjunin! Og hver veit hvar þetta endar! ;)

En já, talandi um byrjun.. ég ákvað að byrja á endanum og ljúka á upphafinu, svona úr því maður var nú einu sinni byrjaður á því.. á endanum..

Fáninn blakti við hún; blár, hvítur og rauður. Gleði ríkti meðal fólksins sem hafði safnast saman til þess að fagna á þessum merka degi. Klukkan var að ganga í fjögur og Örlygur vissi ekki í hvorn fótinn hann átti að stíga. Heilbrigðisstofnun Suðurlands eða brautskráning í Tryggvaskála? Hún myndi nú seint verða þekkt fyri að flýta sér en í þetta skiptið kom hún allavega nógu snemma svo hann næði báðu..

Upp var runninn þjóðhátíðardagur Norðmanna og um leið fæðingardagur minn.

Kannski mætti bara nokkuð einfaldlega lýsa mér og minni ævi útfrá þessum fyrstu kringumstæðum í mínu lífi? Ég er ekkert að flýta mér neitt voðalega mikið, get verið svolítið sein stundum, en helst vil ég gera allt í einu, tvennt ef ekki fleira!
Svo hef ég líka mjög gaman af hinum ýmsasta mannfagnaði! :)

Ég ólst fyrir austan, þ.e. á Selfossi, og telst því til hnakkbælinga og Gylgna. Ég er það sem kalla má örverpi, komin undan þeim kvenskörungi Steingerði Jónsdóttur og gæfumanni Örlygi Karlssyni, á tvo eldri bræður, Jón og Kára.
Ég lauk námi frá Háskóla Íslands í október síðastliðnum með B.A.-próf í frönsku og þjóðfræði sem aukagrein. Ég er hálfnuð með Leiðsöguskólann og stefni á mastersnám næsta haust. Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá… Eitt er víst að alltaf verður, í Asíu gaman, já!