Í hnotskurn:
já já…. hvar á maður eiginlega að byrja… hmmm kannski á byrjuninni?? Þann 6. maí það herrans ár 1983 fæddist ung yngismær….. hún var yngst fjögurra systkina…. oft minnst á sem örverpið nú eða litla barnið…. barin og berfætt í sveitinni…. hmmm ja kannski ekki barin en alveg pottþétt berfætt…. já já oft og mörgum sinnum…. sérstaklega þegar maður var að vaða…. ;0) En barnskónum var semsagt slitið í sveitinni, nánar tiltekið Vorsabæ í Gaulverjabæjarhrepp (og hér á víst að vera hinum forna…. þar sem hann er víst ekki til lengur….)
Þegar árin liðu var farið að huga til borgar ja eða bæjarmenningarinnar….. 8. 9. og 10. bekkirnir teknir með trompi á Selfossi (eða slefossi eins og ég svo oft ásláttarvilluskrifa það…..). En það var nú þar sem ég kynntist ferðafélaga mínum, henni Auði…… Nú svo var hvíta húfan tekin árið 2003….. Árið 2004 var stefnan svo tekin á osta og vín í frönsku rivíerunni… Franskan var tekin með trompi í L’Université Paul Valéry III í indælli ró Montpellier í suður Frakklandi…..
Árið 2006, á haustdögum, hóf pían svo fjarnám við Háskólann á Akureyri í leikskólakennarafræðum….. nú verður hins vegar smá pása tekin þar á …. og brugðið undir sig betri fætinum og haldið á framandi slóðir Asíulanda næstu fjóra mánuðina…… ferðaþráin hefur heillengi blundað í manni…. og nú á að taka þetta með trompi ( ja alla vega ekki nóló)
Annars hef ég ferðast til:
Danmerkur - Svíþjóðar - Frakklands - Spánar - Englands - Írlands - Bandaríkjanna….. og svo eiga hellingur af löndum eftir að bætast hér við ;0)
J’aime….. (eða sko fyrir þá sem ekki vita hvað þetta er…. þá er þetta franska orðið fyrir ég elska….)
Tónlist
Ferðast
Vera í góðra vina hópi
Bjartar sumarnætur
Eitthvað fáránlega fyndið sem fær mann til að hlæja í nokkra daga á eftir…. þó svo að enginn viti út af hverju maður er að hlæja….. ;0)
Dansa - mála
Taka ljósmyndir……
… og svo margt, margt fleira…..
Ef þú vilt, lesandi góður, fá að vita eitthvað meira um mig ….. þá verðurðu bara að hafa fyrir því að kynnast mér…. múhahhaha…. Nú eða setja í komment…. og aldrei að vita nema að maður bæti einhverju við ;0) Bendi svo á að einhverjar myndir eru inná MæsPeysusíðunni minni ;0)

Nýjustu komment