Author Archive for saevar

Stiklað á stóru um Kína

Við höfum ekki verið beinlínis dugleg við að senda fregnir af ferðum okkar heim, svo nú ákváðum við að stikla á stóru um ferðir okkar frá því við yfirgáfum Xingping til dagsins í dag. Við segjum svo kannski betur frá hápunktum ferðarinnar og upplifun okkar af Kína og Kínverjum síðar.

20. apríl

Haldið frá Xingping og vegabréfið hennar Auðar skilið eftir í náttborðsskúffunni… Longji Titian um kvöldið, hrísgrjónaakrarnir á bakbeini drekans.

21. apríl

Ferð með MAMA um hrísgrjónastallana - Congjiang að kveldi til eftir hristing á moldarvegum í um átta tíma og nokkur höfuðhögg utan í bílrúðuna. Uuu, hvar skyldi vegabréfið vera…?

22. apríl

Meiri rúta og loks lítið þorp! Enn var þó 6 km ganga í áfangastaðinn Zhaoxing, fallegt þorp með skemmtilegum karakterum, flestum af Dong þjóðflokknum.

23. apríl

Upphaf rútuferðarinnar til Fenghuang. Enginn miði alla leið - Huahei, okei!

24. apríl

Fenghuang! Fuglinn sem rís úr öskunni - sjálfur kínverski Fönix. Listaspírur á hverju horni með pensilinn á lofti, götusalar við hvern fót og götumatur af bestu gerð.

25. apríl

Fallegar litlar Fenghuang-götur myndaðar í bak og fyrir. Örlítill fyrirsætuleikur fyrir Kínverjanna, kaffihúsarölt og mannlífið tekið beint í æð.

26. apríl

Dehang - tístandi Miao kona, litlar sætar götur, kvöldsýning með drekum, söng og drumbuslátt og ferðamannahópar í massavís.

27. apríl

Hóparnir flúnir og stefnan tekin upp þrönga litla stíga í átt að fallegum fossum.

28. apríl

Lestarferð til þriðja staðarins sem við vissum ekkert um, Xiangfan. Dagur að kveldi kominn og lítið annad að gera en að halda förinni áfram. Lest kl. 03:22 um nóttina til Xi’an, borgarinnar með 6000 leirhermönnunum. Einu lausu plássin voru í yfirfylltum “hard-seat” vagninum. Staðið fyrstu tímana eða þar til nokkrir Kínverjanna sýndu góðmennsku sína í verki og stóðu upp fyrir okkur…

29. apríl

Xi’an og besta farfuglaheimili sem fyrirfinnst! Fyrsta kortið af Xingping teiknað í leit að vegabréfinu.

30. apríl

Málglaði Kanadamaðurinn Jordan, hjólhestaferð um borgina, Pagóður borgarinnar skoðaðar. Fyrst litla villta gæsa pagóðan og svo hin stóra við mikla ljósadýrð og gosbrunnasýningu.

1. maí

Terracotta leirhermennirnir barðir augum. Hittum 3 kínverskar stelpur og eyddum deginum með þeim, fyrst í Terracotta og svo í Múslimahverfinu í Xi’an.

2. maí

Hua Shan - eitt af heilögu Taoista fjöllunum - hæsti tindur í 2160 m. hæd, Suðurtoppurinn. Við klifruðum upp nokkur hundruð tröppur upp á norðurtindinn í sól og blíðu, síðustu tveir kílómetrarnir bókstaflega beint upp á við… Begga hafði brunað upp með kláfnum og fundið okkur rúm í svefnsal þar sem við kúrðum með kveikt ljósin milli 12 kínverja…

3. maí

Vöknuðum klukkan 03:30 til þess að ná sólarupprás á Austurtindi. Auður hringdi í Örlyg pabba á leiðinni upp til að óska honum til hamingju með afmælið (ennþá annar maí heima). Það birti smám saman en sólin var hvergi sjáanleg. Hæsti tindurinn klifinn og þá fór að rigna. Tveir tímar í röðinni eftir kláfnum niður… Og tveggja tíma bið við fjallsrót vegna smá viðskilnings við Kanadíska Jordaninn okkar sem aldrei skilaði sér… Hann tók svo á móti okkur með bros á vör á farfuglaheimilinu. Annar uppdrátturinn af Xingping í leitinni að vegabréfinu…

4. maí

Múslimahverfið í Xi’an í góðra vina hópi - kynntumst ýmist á Hua Shan eða á farfuglaheimilinu - djúsí lamb á grillpinnum, baunaréttur með deyfingarpipar, fimleikafuglar. Um kvoldið var svo gaman að við slepptum því að fara að sofa, geymdum það allavega þar til við gátum pantað morgunverð…

5. maí

Síðasti dagurinn í Xi’an. Röltum aftur um Múslimahverfið með Mike, Carly og Andre, og auðvitað fengum við okkur lamb á teini. Vegabréfið loksins fundið og sent með hraðpósti til sendiráðsins í Beijing. Næturlest í mjúku rúmi til Beijing…

6. maí

Berglind vaknaði árinu eldri í höfuðborg norðursins, 北京. 25. aldursárinu fagnað með Pekingönd og góðu en nokkuð áhugaverðu nuddi.

7. maí

Hittum Andre brasilíumann aftur. Röltum um göngugötur með götumat og ýmsum varningi. Sporðdrekar og krossfiskar á pinnum, sumir enn á hreyfingu… Smökkuðum kjúklingahjörtu.

8. maí

Múrinn sigraður, eða að minnsta kosti 10 km af honum… og sólin brosti við okkur á meðan.

9. maí

Daxing grunn/menntaskóli skoðaður. Frábærar móttökur hjá skólameistara og kennurum, örlítil skódýfa hjá meistaranum við sýningu á sundlaug skólans og hádegisverðarboð. Sumarhöllin í rigningu og kulda eftir ljúffengan matinn.

10. maí

Forboðna borgin í sól og sumaryl undir leiðsögn sjálfvirks leiðsögumanns.

11. maí

Verslað og prúttað á flóamarkaðnum - prúttað og verslað meira á silkigötu. Vorum alveg uppgefin eftir prúttið en fögnuðum síðasta kvöldinu hennar Beggu á Drum’n'Gong, gljáð önd, kínverskt lamb með kúmen og kóríander og villtir sveppir!

12. maí

Begga flaug frá okkur - rólegur dagur í vellystingum, urðum ekki vör við jarðskjálftann, sem betur fer.

13. maí

Annar dagur í afslöppun. Stefnum á að fara í sendiráðið að sækja vegabréfið hennar Auðar og svo kannski kíkja á GongFu sýningu í kvöld.

Áfangastaður: Kína

Ég lagði í hann frá Keflavík samkvæmt áætlun á sunnudagsmorgun. Farkosturinn hjá Icelandair var með flottasta móti því ég flaug með fyrstu vélinni sem búið er að setja í ný sæti með svaka flottu afþreyingarkerfi. Ég hélt svo frá Heathrow yfir til Gatwick til þess að bíða eina 8 tíma eftir fluginu til Hong Kong. Flugið mitt var ekki komið upp á tilkynningaskjáina svo ég beið í um 2-3 tíma. Þegar flugið mitt hefði átt að vera komið á tilkynningaskjáina fyrir löngu ákvað ég að fara og spyrja hvort fluginu hefði verið seinkað og hvenær check-in byrjaði. Þá fékk ég þau svör að flugfélagið, Oasis, hefði lagt upp laupana 9. apríl og væri komið í gjaldþrotaskipti. Það er greinilegt að hækkanir á eldsneytisverði hafa víðtækari áhrif en maður hélt! Ég fékk svo eyðublað til þess að gera kröfu um endurgreiðslu og upplýsingar um önnur flugfélög sem fljúga til Hong Kong.
Þetta var ákveðið áfall og nú voru góð ráð dýr. Reyndar alveg rándýr. Ég kannaði strax hvernig væri með önnur flug til Hong Kong. Besti kosturinn var Air New Zealand, 570 pund, færi eftir 4 tíma frá Heathrow. Ég skar af mér handlegg og fótlegg og afhenti afgreiðslustúlkunni, þaut svo út í næstu rútu á Heathrow og var kominn í loftið um 10-leytið um kvöldið. Þetta breytti ferðaáætluninni ekki neitt svo stefnumótið við stelpurnar í Nanning átti að standast.
Ég lenti svo í Hong Kong eftir um 11 tíma þægilegt flug og tók strax stefnuna á básinn hjá CTS, China Travel Services. Þar fékk ég rútumiða til Nanning á 350 Hong Kong dollara, eða um 3.374 íslenskar krónur. Fyrst var keyrt til Shenzhen, sem er bær á landamærum Hong Kong og Kína. Þar var svo skipt um rútu. Rútan reyndist vera “sleeper”, sem þýðir að í henni voru 3 raðir af kojum á tveimur hæðum. Rúmin voru mjög þröng, og mismunandi löng líka. Fyrst fékk ég rúm sem var um að bil höfðinu styttra en ég, en bílstjórinn sá aumur á mér og leyfði mér að skipta yfir í rúm sem var um það bil jafn langt og ég… Ferðin tók styttri tíma en ég hélt, eða um 10 tíma. Ég lenti því í Nanning um 8-leytið að morgni 15. apríl eftir um 36 tíma ferðalag…

Lagt í’ann

Jæja, ég ætla aðeins að troða mér hérna að… :)

Ég flýg í fyrramálið 13. apríl kl. 7:40 að íslenskum tíma til móts við Auði og Beggu. Ég býst við að hitta þær um miðjan daginn 15. apríl að kínverskum tíma! Ég flýg um London til Hong Kong, þaðan tek ég 17 tíma næturrútu til Nanning, og hitti vonandi stelpurnar þar á þriðjudaginn eins og áður sagði. Stelpurnar fara frá eyjunni sem þær eru á til Ha Noi, höfuðborgar Víetnam, og taka þaðan rútu yfir landamærin. Nanning er í um 4 tíma fjarlægð frá landamærum Víetnam. Við verðum vonandi öll á lífi eftir allt þetta ferðalag! Hérna er svo smá kort af hittingnum:


Skoða stærra kort

- Sævar, spenntur að leggja í’ann