Við lentum í Taílandi í gær í miklum raka og um 30 stiga hita.
Við fundum okkur hótel á Khao San, mjög líflegri götu, með sundlaug á þakinu. Maturinn er ljúffengur, sérstaklega steiktu pöddurnar með mjúku fyllingunni sem hægt er að kaupa af götusölum.
Við ætlum að koma okkur til Koh Phangan á morgun. Það er lítil eyja við austurströnd Taílands. Strandaparadís með böngalóum og ruggandi hengirúmum… Þaðan er stutt yfir til Ko Tao ef við skyldum vilja kíkja í undidjúpin.
Þegar við vorum á röltinu í gær gengum við framhjá stað þar sem þreyttir ferðalangar lágu á bekkjum og fengu slakandi andlitsnudd. Það er líklegast næsti viðkomustaður okkar eftir netkaffið
Bestu kveðjur til ykkar allra frá Taílandi!
Auður og Begga

Nýjustu komment