…. ótrúlegt en satt eftir alla kílómetrana sem við höfum lagt að baki á undanförnum vikum….
Ætla bara rétt að láta ykkur vita að núna erum við komnar til Cat Bá/Halong Bay í norður Víetnam. T’ókum sem sagt að ég held bara hálfa Víetnam á síðastliðnum sólarhring. T’ókum smá stopp í Hué þar sem við skoðuðum Citadelið (hmmm veit einhver íslenska orðið??). Héldum reyndar að við myndum andast þar úr hita og svita…. hann gjörsamlega lak af okkur bara við það að hugsa.
Hérna ætlum við að vera í nokkra daga… plönuð er bátsferð/kajakaferð á morgun og hinn dagurinn fer í göngur hérna um þjóðgarð eyjunnar. Svo er það bara Kína eftir 4 daga þar sem við munum hitta Sævar….
Kveð ykkur í bili….
Begga - orðin útsjóuð í rútu-/báts- og mótorhjólaferðum…. ;0)

Nýjustu komment