Tag Archive for 'Delhi'

Hvað gerist næst?

Jæja já… maður er bara ótrúlega duglegur að blogga ;0)

Við Auður hittum Nitali í gær og fórum saman að skoða Red fort og Mosku…. Í Red fort komu til okkar múslímsk fjölskylda (að við höldum)… og tók í hendina á okkur… já við erum bara orðnar nokkuð frægar hérna… þeim fannst þetta alla vega mjög merkilegt ;0) Fórum svo úr sokkum og skóm til að fara inn í eina af stærstu moskunum í Delhi. Við höfðum reyndar ekkert svakalega mikinn tíma þar sem sólin var að fara að setjast og þá megum við ekki vera inni við.

En það er rosalega fínt að hafa hana Nitali… við fáum skutl hingað og þangað ;0) og svo er líka gott að hún talar hindí þannig að hún gat verið munnur okkar í gær ;0)

Við tékkuðum okkur svo út af þessu hóteli í morgun og gistum áreiðanleg með Nitali heima hjá skyldfólki hennar í nótt…. en svo er förinni heitið til Agra á morgun að skoða Taj Mahal ;0) spennó - spennó

Á eftir ætlum við svo að versla okkur einhver föt með mömmu hennar Nitali… hún er nottla indversk þannig að minni hætta er á að það sé eitthvað verið að svindla á okkur ;0) Svo þurfum við líka að kaupa eitthvað sætt fyrir brúðkaupið ;0)

Vitum ekki alveg hvenær við náum að blogga næst… en þangað til … verið hress - ekkert stress og bless ;0)

Indíafararnir…. Begga og Auður… ;0)

Dýr á götum úti

Við notuðum fyrsta daginn í Delhi til þess að ná úr okkur flugþreytunni og komast í gang.

Okkur hefur nú þegar verið boðið í eitt stykki brúðkaup en það fer fram hérna í Delhi 24. janúar. Vinkona Beggu frá því í Frakklandi, Nitali, er hérna í Delhi en hún er af inverskum uppruna. Hún er tilbúin að hitta okkur og ferðast eitthvað með okkur um Indland fram að brúðkaupi en hún heldur af landi brott í lok mánaðarins.

Í gærkvöldi snæddum við á einum af mörgum veitingastöðum hverfisins. Nokkrar kýr áttu leið hjá, ein þeirra fékk sér að borða og hélt svo á brott. Sennilega í leit að eftirrétt á öðrum stað. Stuttu síðar rölti fíll framhjá í rólegheitunum. Stærðarinnar fíll á þessari litlu og þröngu götu sem myndi ábyggilega ekki rúma tvo bíla hlið við hlið!

Fróðlegt er að vita hvað dagurinn í dag ber í skauti sér.

Kv.

Auður og Begga

Lentar í Delhi, Indlandi!

Jæja, jæja. Þá erum við komnar til Delhi.

Það varð tveggja tíma seinkun á fluginu okkar til London vegna veðurs. Hehe það er enginn snjór hér ;)

Tíminn var fljótur að líða á Heathrow og áður en við vissum vorum við á leiðinni í vélina - jumbo þotuna - til Delhi, þar sem við fengum konunglega meðferð.
Nokkrir heitir þvottapokar, þriggja rétta máltíð með víni, sokkar, tannbusti og tannkrem, bíómyndir að eigin vali…

Bakpokarnir skiluðu sér eftir flugið og okkur tókst að komast klakklaust frá vellinum í svokölluðum PrePaid Taxi. Leiðin að taxanum virtist nokkuð snúin í gegnum mannmergðina sem beið við útganginn en andlitin voru vinaleg og ekkert áreiti :)
Á leiðinni inn í borgina sáum við úlfaldalest, lögregluþjóna með hanakambshatt og eitt barn bankaði á bílrúðuna til að betla.

Það er kannski ekki alveg hægt að segja það sama um götuna Main Bazaar sem hótelið okkar, Vivek, stendur við. Það er að þar sé áreitið lítið sem ekkert. Við gerðum eina heiðarlega tilraun áðan til þess að skoða okkur um. Við svöruðum á einum stað einni af þeim þúsund spurningum sem ringdu yfir okkur og urðum samstundis eins og mykjuskán sem mýið sækist í. Það er spurning hvenær næsta tilraun verður gerð.. ;)

En það verða allavega þreyttar en kátar stúlkur sem leggjast á koddann í kvöld.

Bloggumst síðar ;)

Kv. Auður og Begga