Tag Archive for 'gjaldþrot'

Áfangastaður: Kína

Ég lagði í hann frá Keflavík samkvæmt áætlun á sunnudagsmorgun. Farkosturinn hjá Icelandair var með flottasta móti því ég flaug með fyrstu vélinni sem búið er að setja í ný sæti með svaka flottu afþreyingarkerfi. Ég hélt svo frá Heathrow yfir til Gatwick til þess að bíða eina 8 tíma eftir fluginu til Hong Kong. Flugið mitt var ekki komið upp á tilkynningaskjáina svo ég beið í um 2-3 tíma. Þegar flugið mitt hefði átt að vera komið á tilkynningaskjáina fyrir löngu ákvað ég að fara og spyrja hvort fluginu hefði verið seinkað og hvenær check-in byrjaði. Þá fékk ég þau svör að flugfélagið, Oasis, hefði lagt upp laupana 9. apríl og væri komið í gjaldþrotaskipti. Það er greinilegt að hækkanir á eldsneytisverði hafa víðtækari áhrif en maður hélt! Ég fékk svo eyðublað til þess að gera kröfu um endurgreiðslu og upplýsingar um önnur flugfélög sem fljúga til Hong Kong.
Þetta var ákveðið áfall og nú voru góð ráð dýr. Reyndar alveg rándýr. Ég kannaði strax hvernig væri með önnur flug til Hong Kong. Besti kosturinn var Air New Zealand, 570 pund, færi eftir 4 tíma frá Heathrow. Ég skar af mér handlegg og fótlegg og afhenti afgreiðslustúlkunni, þaut svo út í næstu rútu á Heathrow og var kominn í loftið um 10-leytið um kvöldið. Þetta breytti ferðaáætluninni ekki neitt svo stefnumótið við stelpurnar í Nanning átti að standast.
Ég lenti svo í Hong Kong eftir um 11 tíma þægilegt flug og tók strax stefnuna á básinn hjá CTS, China Travel Services. Þar fékk ég rútumiða til Nanning á 350 Hong Kong dollara, eða um 3.374 íslenskar krónur. Fyrst var keyrt til Shenzhen, sem er bær á landamærum Hong Kong og Kína. Þar var svo skipt um rútu. Rútan reyndist vera “sleeper”, sem þýðir að í henni voru 3 raðir af kojum á tveimur hæðum. Rúmin voru mjög þröng, og mismunandi löng líka. Fyrst fékk ég rúm sem var um að bil höfðinu styttra en ég, en bílstjórinn sá aumur á mér og leyfði mér að skipta yfir í rúm sem var um það bil jafn langt og ég… Ferðin tók styttri tíma en ég hélt, eða um 10 tíma. Ég lenti því í Nanning um 8-leytið að morgni 15. apríl eftir um 36 tíma ferðalag…