Tag Archive for 'gúmmíslöngur'

Á slöngu….

Já gott fólk…. þetta verður stutt færsla í þetta sinnið… við erum svo svakalega bissí (eða uppteknar á góðri íslensku). Erum núna staddar í Vang Vieng þar sem við erum búnar að vera í hellaskoðunum (beinlínis þurftum að troða okkur inní einum hellinum) og hina dagana höfum við flotið niður ána hérna á gúmmíslöngum…. sem er bara gaman… svo að þið vitið það ;0)

Við ætlum að reyna að yfirgefa plássið hérna á morgun… og halda í suður átt…. héldum að í dag væri 19. og að við hefðum enn nægan tíma… en litum svo á dagatal og áttuðum okkur á því að það er kominn 21!!… þannig að við þurfum að fara að haska okkur ;0)

Annars er nú það að frétta að við hittum annan íslending í fyrsta skipti í dag…. nokkuð fyndið og skemmtilegt… en þekktum að vísu ekkert til hans… sem má segja að sé nokkuð einstakt fyrir þessa þjóð :0)

Já þetta verður ekki lengra í bili…. ég er farin að verða ansi svöng enda klukkan að nálgast 10 um kvöld… og ég ætla rétt að vona að einhverjir veitingastaðir gefi svöngum íslendingi að borða ;0)

 En þangað til næst … hafið það sem allra best… gleðilega páska og ekki borða yfir ykkur af páskaeggjum :0)

Begga (orðin ágætlega marineruð af gúmmíslöngusiglingum ;0)