Tag Archive for 'London'

Lokahnykkurinn…

Já er ekki kominn tími til að setja punktinn yfir i-ið…..

Þann örlagaríka dag 12. Maí kvaddi ég þau Auði og Sævar og hélt sem leið lá til London til móts við mömmu, systur mínar og frænku….

Þegar ég lenti á Heathrow eftir 10 tíma flug skundaði ég beinustu leið á klósettið. Sem er sosum ekki frásögufærandi – nema að maður hafi verið ábyrgur klósettnotandi í Asíu í nokkra mánuði…. Klósett urðu jafntíðrædd meðal ferðalanga eins og veðrið er okkur íslendingum hugleikið. Ef maður þurfti eitthvað umræðuefni brást aldrei að brydda uppá klósettum og ja, nánast allt sem þeim viðkom. Það var heldur alls ekki óalgengt að það rigndi yfir mann spurningum um klósettaðstöður gerðist maður svo heppinn að nýta þær t.d. á veitingastöðum, lestum – ja eða bara hvar sem er. Er hola? Var einhver klósettpappír? Var ruslakarfa? Er hægt að þvo sér um hendurnar í vaski? Klósettin voru nú misjöfn eins og þau voru mörg og ef maður var ótrúlega heppinn gat maður sest á vatnsklósett, skeint sér með þessum líka fína klósettpappír og svo þvegið sér um hendurnar. Það var nú talið að detta í lukkupottinn ef það var almennileg sápa við vaskinn og að ég tali nú ekki um handklæði.

Svo er það nefnilega eitt sem maður þarf að passa sig þegar maður er að nýta asísk klósett – og það er að það má alls ekki setja klósettpappírinn í klósettið sjálft!! Pípulagnir klósetta í Asíu eru nefnilega ekki uppá marga fiska. Ef maður gleymir sér og setur pappírinn í klósettið má maður búast við því að sjá nokkra kínverja, daginn eftir, í skolpræsinu í götunni – líklegast blótandi þessum ferðalöngum sem vita ekki neitt…..

 

En svo við vindum okkur aftur að mér – þarna á klósettinu á Heathrow…. Nýkomin úr þessum klósettmenningarheim. Þarna var nefnilega ruslafata við hliðina á klósettinu og þar sem maður var búinn að hafa mikið fyrir því að venja sig á að henda blessuðum pappírnum í ruslafötuna þá lenti ég í ákveðinni „ákvarðanafælni“ – Klósettið eða fatan – fatan eða klósettið. Á endanum áttaði ég mig á því að líklegast væri nú bara allt í lagi að skella pappírnum í klósettið, stóð upp og sturtaði niður…. en fékk þó vott af samviskubiti – svona bara af gömlum vana og vonaði að pappírinn myndi ekki stífla rörin ;0)

Annars hafði ég það bara mjög gott í London . Visa kortið fékk aðeins að finna fyrir því til hvers það á að vera notað, horfðum á dansandi bleikar dömur og leðurklædda gaura í Grease og gerðumst algjörir túristar í tveggja hæða strætó, rúntandi um borgina.

Ég hitti svo Auði og Sævar aftur í terminal 1 á Heathrow þann 15. Maí. Ég held að ég geti sagt að þau hafi verið orðin frekar ferðalúin eftir allt flugið. Við áttum svo gott flug heim og lentum heil á höldnu á íslenskri grundu eftir 4 mánaða fjarveru. 

„Hið venjulega líf“ er svo komið á fullt…..  við ætlum nú samt að reyna að blogga eitthvað meira hérna – bæði um löndin sem við vorum í sem og ýmsar skemmtilegar uppákomur sem við höfum ekki enn náð að festa á netið. Þannig að ykkur er óhætt að „kíkja við“ öðru hvoru…. aldrei að vita nema að í boði verða nýsteiktar kleinur og nýlagað kaffi ;0)

-Begga