Tag Archive for 'Trekking'

9 fílar lögðu af stað í leiðangur!

Jú við erum enn á lífi eftir að hafa lifað í 3 daga í ,,óbyggðunum”. Þetta voru nú reyndar ekkert svo svakalegar óbyggðir og þorpsbúar höfðu drykkjarföng og snakk til sölu hvar sem maður stoppaði.

Við byrjuðum ferðina á því að skella okkur á fílsbak. Verðum reyndar að játa að þetta var einum of túristalegt. Virkaði svolítið eins og færibandavinna - nokkrir hópar teknir í einu og farin ein leið fram og til baka. Á leiðinni voru nokkrar ,,sjoppur” þar sem við gátum keypt drykki og banana fyrir fílana. Við Auður keyptum sitthvorn bananapokann til að fæða fílinn sem þáði það með þökkum og skellti rananum í sífellu aftur fyrir sig til okkar. Okkur fylgdi líka einn fílsungi sem var fljótur að fatta að þessar tvær íslensku stelpur væru ansi gjafmildar. Hann launaði okkur með því að ,,sleikja” á okkur fæturna með rananum!

Ekki var það nú mjög auðvelt að ganga uppí mót í þessum hita og svitinn hreinlega spratt af okkur öllum. Við náðum þó að kæla okkur í hinum ýmsu fossum þar sem var áð öðru hvoru. Ekki máttum við nú sprengja okkur og svamlið í köldu vatninu var vel þegið ;0) Yfir þessa þrjá daga stoppuðum við hjá fjórum fossum sem voru hver öðrum fallegri.

Það var búið að segja okkur að við myndum sjá ýmis villt dýr í þessari ferð, m.a. snáka og köngulær. Snákarnir létu nú ekki mikið sjá sig en við sáum og ekki sáum þrjá snáka. Ég sá t.d. bara einn og hann var pínulítill - á stærð við grasorm! En köngulærnar voru á hverju strái og þær voru ekki svona pínulitlar. Sem betur fer reyndi maður nú bara lítið að vera að glápa á þær og lét sem þær væru barasta ekki til. Sérstaklega á kvöldin þegar var farið að sofa!

Við gistum í bambushúsum þar sem vasaljós var algjör nauðsyn. Jebb ekkert rafmagn í frumskóginum. Fyrri nóttina gistum við í útjaðri þorps sem við fengum svo að ganga í gegnum daginn eftir. Sáum m.a. skólann þarna … og jú það var ein búð sem seldi ýmsan varning. Við fengum einnig að smakka nokkrar ,,tælenskar hnetur” með bjórnum - ó já góðir hálsar … við smökkuðum pöddur! Með hausnum og öllu - meira að segja bara nokkrar. Ég verð að segja að þær eru mun bragðbetri en ég bjóst við….. og auðvitað fullar af prótíni!

Seinni nóttina gistum við í bambuskofa við foss. Leiðsögumaðurinn okkar, hann Dat (hann var nú samt ekki dettinn!), kenndi okkur einn mjög skemmtilegan leik þar sem allur hópurinn endaði svartur af sóti í framan. Sumir meira en aðrir ;0) Ég held meira að segja að við séum enn með hálfgerðan magaverk af hlátri enda ansi hreint skemmtilegur hópur sem við vorum í.

Síðasta daginn skelltum við okkur svo á bambusfleka niður á. Við bjuggumst nú við einhverju svakalegu hafaríi en þetta var nú ansi róleg ferð. Það var þó ein stelpa á flekanum mínum sem lenti í því að detta út fyrir og við fórum jú niður einn lítinn foss…. en það var nú allt og sumt.. Nokkrum tælendingum fannst reyndar mjög fyndið að vara okkur við krókódílum svona rétt áður en við stigum á flekana…. en það voru nú held ég engir í þessari á ;0)

Á morgun er svo förinni heitið að landamærum Laos en við ættum að vera komnar til Luang Prabang, á bát, þann 14. mars. Þannig að tíminn hér í Tælandi er senn á enda og er búinn að líða mjög hratt - ferðin okkar að verða hálfnuð!

Jæja segi þetta gott í bili… orðin ágætis lesning. Næsta blogg verður svo frá Laos ;0)

Chingadingdingding
Begga ;0) 

Krabi og Chiang Mai

Áfram heldur ferðalagið og ekki nema rétt rúm vika eftir af veru okkar hér í Tælandi.

Við eyddum nokkrum dásamlegum dögum á Krabi, á vesturströnd suður Asíu.

Þar sem við hreinlega elskum að ferðast um á skipum ákváðum við að eyða einum degi í að heimsækja nálægar eyjar. Við sigldum framhjá Kjúklingaeyju sem dregur nafn sitt af því að einn kletturinn á henni lítur út eins og haus á hænu. Við sigldum í kringum Koh Phi Phi Lay – þar sem við urðum svo frægar að stoppa við þá frægu strönd sem var notuð sem tökustaður í myndinni The Beach. Við skelltum okkur í tæran sjóinn (held að ég hafi aldrei séð jafn tæran og fallegan sjó!) og snorkluðum að nálægri strönd þar sem ég hugsa að ég gæti alveg eytt það sem eftir væri ævi minnar! Þetta er svo fallegt… að það er varla hægt að lýsa því með orðum. Það er bara ekkert annað fyrir ykkur lesendur góðir að skella ykkur sjálfir ;0) En fyrir þá sem ekki geta það ættu að koma inn myndir von bráðar ….

Eftir svaml í sjónum var brunað að næstu eyju sem heitir nánast það sama – Koh Phi Phi Don. Þar fengum við hádegisverð og smá frjálsan tíma. Að lokum sigldum við heim í síðdegissólinni, uppi á dekki með tásurnar danglandi fram af skipinu – Hvað gæti verið betra??

Þar sem við stöllur erum svo ótrúlega öflugar og til í allt ákváðum við að skella okkur í Jungle ferð. Þar byrjuðum við á að skella okkur í eina heita laug (jú Tælendingar eiga víst líka heitar uppsprettur eins og við íslendingar). Vatnið var eitthvað um 36 gráður en við máttum alls ekki vera lengur en í 20 mínútur. Annað væri bara of hættulegt fyrir heilsuna.  Á þessari stundu varð okkur hugsað til allra íslendinganna sem flatmaga í heitu pottunum á Íslandi. Eftir að hafa bleytt sig aðeins í hitanum röltum við í gegnum skóginn þar sem sumir stígarnir voru þaktir rótum og á öðrum stöðum þurftum við að stikla á trjástubbum.

Leið okkar lá í aðra laug sem var nú reyndar ekki heit uppspretta þannig að við gátum svamlað í henni að vild. Hún hafði reyndar þá sérstöðu að vatnið var nánast grænt á litinn og dregur hún nafn sitt af því – Emerald Pool.

Eftir nokkuð gott svaml var auðvitað fengið sér eitthvað í gogginn. Enda veitti ekki af því næsta stopp var Tígrisdýrahellirinn. Hmmm nei það voru víst engin tígrisdýr þar en óvænta ánægjan var að við máttum klöngrast upp 1237 tröppur uppá fjallstopp!! Sem við og gerðum á hálftíma! Og geri aðrir betur. Uppi á fjallstoppinum höfðum við frábært útsýni en þar var jafnframt þessi gríðarstóri gyllti Búdda. Húff… ég hefði sko ekki viljað vera að vinna við að koma honum upp og í gír…. Það hefði alveg mátt halda að við hefðum skellt okkur í poll þegar við komum niður…. held að ég þurfi ekki að segja meira um það.

Þegar niður var komið biðu okkar þar nokkrir apar sem voru ótrúlega gæfir og alveg til í að borða eitthvað frá okkur. Auður gaf nokkrum banana og ég gaf einum örlítið snakk og þakkaði hann pent fyrir sig með því að setja loppuna á sér í lófann á mér í dágóða stund. Hann var meira að segja svo þakklátur að hann gerði heiðarlega tilraun til að stela snakkpokanum hennar Auðar sem átti sér einskis ills von við að taka myndir.

Okkar beið svo einstaklega ,,skemmtilegt” 35 tíma ferðalag og erum núna staddar í norður hluta Tælands – nánar tiltekið í Chiang Mai. Hérna höfum við þeyst um götur borgarinnar á hjólum, skellt okkur á næturmarkaðinn þar sem nokkrir þúsundkallar fengu að fjúka í staðinn fyrir góðan varning og eyddum svo deginum í dag í það að læra að elda tælenskan mat. Ég get nú alveg sagt ykkur það að við erum snilldar kokkar!! ;0)

Á morgun er svo förinni heitið út í frumskóginn. Þar ætlum við að eyða næstu dögum í að skoða fallegt landslag, fara á fílsbak, river rafting og heimsækja þorp innfæddra ættbálka, þar sem við munum eyða nóttunum. Það verður spennandi að sjá og vita hvað gerist í þeirri ferð !! En við höfum heyrt að mikið sé um snáka á þessum slóðum ;0)

Kveðjur úr pottunum….
Begga