Tag Archive for 'Xingping'

Stiklað á stóru um Kína

Við höfum ekki verið beinlínis dugleg við að senda fregnir af ferðum okkar heim, svo nú ákváðum við að stikla á stóru um ferðir okkar frá því við yfirgáfum Xingping til dagsins í dag. Við segjum svo kannski betur frá hápunktum ferðarinnar og upplifun okkar af Kína og Kínverjum síðar.

20. apríl

Haldið frá Xingping og vegabréfið hennar Auðar skilið eftir í náttborðsskúffunni… Longji Titian um kvöldið, hrísgrjónaakrarnir á bakbeini drekans.

21. apríl

Ferð með MAMA um hrísgrjónastallana - Congjiang að kveldi til eftir hristing á moldarvegum í um átta tíma og nokkur höfuðhögg utan í bílrúðuna. Uuu, hvar skyldi vegabréfið vera…?

22. apríl

Meiri rúta og loks lítið þorp! Enn var þó 6 km ganga í áfangastaðinn Zhaoxing, fallegt þorp með skemmtilegum karakterum, flestum af Dong þjóðflokknum.

23. apríl

Upphaf rútuferðarinnar til Fenghuang. Enginn miði alla leið - Huahei, okei!

24. apríl

Fenghuang! Fuglinn sem rís úr öskunni - sjálfur kínverski Fönix. Listaspírur á hverju horni með pensilinn á lofti, götusalar við hvern fót og götumatur af bestu gerð.

25. apríl

Fallegar litlar Fenghuang-götur myndaðar í bak og fyrir. Örlítill fyrirsætuleikur fyrir Kínverjanna, kaffihúsarölt og mannlífið tekið beint í æð.

26. apríl

Dehang - tístandi Miao kona, litlar sætar götur, kvöldsýning með drekum, söng og drumbuslátt og ferðamannahópar í massavís.

27. apríl

Hóparnir flúnir og stefnan tekin upp þrönga litla stíga í átt að fallegum fossum.

28. apríl

Lestarferð til þriðja staðarins sem við vissum ekkert um, Xiangfan. Dagur að kveldi kominn og lítið annad að gera en að halda förinni áfram. Lest kl. 03:22 um nóttina til Xi’an, borgarinnar með 6000 leirhermönnunum. Einu lausu plássin voru í yfirfylltum “hard-seat” vagninum. Staðið fyrstu tímana eða þar til nokkrir Kínverjanna sýndu góðmennsku sína í verki og stóðu upp fyrir okkur…

29. apríl

Xi’an og besta farfuglaheimili sem fyrirfinnst! Fyrsta kortið af Xingping teiknað í leit að vegabréfinu.

30. apríl

Málglaði Kanadamaðurinn Jordan, hjólhestaferð um borgina, Pagóður borgarinnar skoðaðar. Fyrst litla villta gæsa pagóðan og svo hin stóra við mikla ljósadýrð og gosbrunnasýningu.

1. maí

Terracotta leirhermennirnir barðir augum. Hittum 3 kínverskar stelpur og eyddum deginum með þeim, fyrst í Terracotta og svo í Múslimahverfinu í Xi’an.

2. maí

Hua Shan - eitt af heilögu Taoista fjöllunum - hæsti tindur í 2160 m. hæd, Suðurtoppurinn. Við klifruðum upp nokkur hundruð tröppur upp á norðurtindinn í sól og blíðu, síðustu tveir kílómetrarnir bókstaflega beint upp á við… Begga hafði brunað upp með kláfnum og fundið okkur rúm í svefnsal þar sem við kúrðum með kveikt ljósin milli 12 kínverja…

3. maí

Vöknuðum klukkan 03:30 til þess að ná sólarupprás á Austurtindi. Auður hringdi í Örlyg pabba á leiðinni upp til að óska honum til hamingju með afmælið (ennþá annar maí heima). Það birti smám saman en sólin var hvergi sjáanleg. Hæsti tindurinn klifinn og þá fór að rigna. Tveir tímar í röðinni eftir kláfnum niður… Og tveggja tíma bið við fjallsrót vegna smá viðskilnings við Kanadíska Jordaninn okkar sem aldrei skilaði sér… Hann tók svo á móti okkur með bros á vör á farfuglaheimilinu. Annar uppdrátturinn af Xingping í leitinni að vegabréfinu…

4. maí

Múslimahverfið í Xi’an í góðra vina hópi - kynntumst ýmist á Hua Shan eða á farfuglaheimilinu - djúsí lamb á grillpinnum, baunaréttur með deyfingarpipar, fimleikafuglar. Um kvoldið var svo gaman að við slepptum því að fara að sofa, geymdum það allavega þar til við gátum pantað morgunverð…

5. maí

Síðasti dagurinn í Xi’an. Röltum aftur um Múslimahverfið með Mike, Carly og Andre, og auðvitað fengum við okkur lamb á teini. Vegabréfið loksins fundið og sent með hraðpósti til sendiráðsins í Beijing. Næturlest í mjúku rúmi til Beijing…

6. maí

Berglind vaknaði árinu eldri í höfuðborg norðursins, 北京. 25. aldursárinu fagnað með Pekingönd og góðu en nokkuð áhugaverðu nuddi.

7. maí

Hittum Andre brasilíumann aftur. Röltum um göngugötur með götumat og ýmsum varningi. Sporðdrekar og krossfiskar á pinnum, sumir enn á hreyfingu… Smökkuðum kjúklingahjörtu.

8. maí

Múrinn sigraður, eða að minnsta kosti 10 km af honum… og sólin brosti við okkur á meðan.

9. maí

Daxing grunn/menntaskóli skoðaður. Frábærar móttökur hjá skólameistara og kennurum, örlítil skódýfa hjá meistaranum við sýningu á sundlaug skólans og hádegisverðarboð. Sumarhöllin í rigningu og kulda eftir ljúffengan matinn.

10. maí

Forboðna borgin í sól og sumaryl undir leiðsögn sjálfvirks leiðsögumanns.

11. maí

Verslað og prúttað á flóamarkaðnum - prúttað og verslað meira á silkigötu. Vorum alveg uppgefin eftir prúttið en fögnuðum síðasta kvöldinu hennar Beggu á Drum’n'Gong, gljáð önd, kínverskt lamb með kúmen og kóríander og villtir sveppir!

12. maí

Begga flaug frá okkur - rólegur dagur í vellystingum, urðum ekki vör við jarðskjálftann, sem betur fer.

13. maí

Annar dagur í afslöppun. Stefnum á að fara í sendiráðið að sækja vegabréfið hennar Auðar og svo kannski kíkja á GongFu sýningu í kvöld.

Xingping - Longji

Við stigum niður faraldsfætinum í Xingping þann 19. apríl, litlu snotru þorpi við Li ána.

Tamir, vinur okkar frá Ísrael, hafði bent okkur á staðinn en hann hafði eytt þarna nokkrum vikum, vann á einum veitingastað bæjarins og fékk borgað í mat og gistingu. Við tókum stefnuna beint á vinnustað hans, “This Old Place,” og flúðum í leiðinni hópinn af söluglöðu konunum sem tóku á móti okkur á rútustöðinni.

Um daginn skelltum við okkur í siglingu á bambusbát niður ána. Útsýnið var stórfenglegt, enda að finna aftan á 20 yuan seðlinum (þess má geta að Mao formaður er að sjálfsögðu framan á téðum seðli, nýklipptur og fínn. Og ekki nóg með það - hann er á þeim öllum!).

Við gátum skemmt okkur við sprauta úr vatnsbyssu á saklausu kínversku ferðamennina sem sigldu fram hjá. Eftir ágætis siglingu stoppuðum við á lítilli strönd fullri af sölukonum á öllum aldri, beinum og bognum í baki, sléttum og hrukkóttum. Sumar vildu selja okkur steikta krabba og fiska, aðrar hnetur og ávexti. Ein komin vel á aldur elti okkur heillengi með sítrusávöxtinn sinn og við gátum ekki annað en keypt af henni einn til að smakka.

Um kvöldið kíktum við á einn af veitingastöðum bæjarins. Við vorum ekki mjög hungruð en ákváðum að fá okkur bita. Ég skellti mér á tómatsúpuna og viti menn, ég fékk heilt fat! Nóg fyrir tíu manns. Seinna um kvöldið ætluðum við að reyna að komast á sérstæðar fiskveiðar. Veiðimennirnir notast við fugla í stað veiðarfæra; fuglarnir stinga hausnum í vatnið í leit að fiskum, þegar þeir ná einum skjótast þeir upp á yfirborðið. Veiðimaðurinn hefur sett band utan um hálsinn á fuglinum svo hann geti ekki gleypt fæðuna og voila, fiskur er veiddur!
Því miður varð ekkert úr slíkri veiðiferð því bærinn var sofnaður.

Daginn eftir lögðum við í hann til Longji Titian, “hrísgrjónaakranna á bakbeini drekans.” Þegar við stigum út úr rútunni í Longsheng, næsta bæ við, tók MAMA á móti okkur. Hún varð okkar perónulegi leiðsögumaður, mamma og herforingi næsta sólarhringinn eða svo.

Við gistum hjá henni í litlu þorpi lengst uppi í fjöllunum. MAMA tilheyrir Yao minnihluta þjóðflokknum. Í Kína eru 55 minnihluta þjóðflokkar, sá fimmtugasti og sjötti er Han og honum tilheyra 92% Kínverja. Eins og flestir vita mega Kínverjar einungis eignast eitt barn vegna offjölgunar en fólk af minnihlutaþjóðflokkunum mega eignast tvö börn ef fyrra barn er stelpa. Þessi lög voru sett árið 1979 með það langtíma markmið að Kínverjar yrðu orðnir 700 milljónir árið 2050. Nú er íbúafjöldi í Kína um 1,3 milljarður.

Um kvöldið bauð fjölskyldan okkur inn í eldhúsið þar sem við sátum í kringum pottinn og drukkum heimabruggað vín úr sætum kartöflum. Við buðum þeim uppá harðfisk sem þeim fannst góður, smá ópalskot og sterkt nammi. Í pottinum mallaði eitthvað kjöt og kartöflur. Við vorum hikandi við að prófa og einn úr hópnum fór að reyna að lýsa dýrinu. Lítið, loðið, skríður á jörðinni… en hann var fljótt stoppaður og sá sem talaði hvað besta ensku sagði “uuu, já, þetta er lítið svín.” Beinin voru heldur smágerð til þess að vera grís, en ég smakkaði samt einn bita meðan Sævar lét skrýtin innyflin aftur í pottinn. Við erum nokkuð sammála um að þetta hafi verði rottukjöt…

Daginn eftir fór MAMA með okkur í göngu um hrísgrjónaakrana. Akrarnir eru á stöllum í hlíðum fjallanna í kring og ná mest upp í 800 m hæð. Allt þetta var gert með handafli og mesta hjálpartækið er sennilega hestur. MAMA sagði okkur reglulega að taka myndir af hinu og þessu, skreytti okkur með blómakrönsum, bjó til strábáta og stillti sér upp svo við gætum tekið myndir af henni.

Seinna um daginn fylgdi hún okkur alla leið upp í rútuna til næsta áfangastaðar, Zhaoxing.